störf þingsins.
Herra forseti. Nú liggur fyrir að ríkisstjórnin ætlar að framlengja gildistíma ferðagjafarinnar og það er gott. Mér fannst þessi hugmynd stjórnarinnar á sínum tíma bæði skynsamleg og frumleg, en hún hefði mátt vera kraftmeiri. Við hefðum viljað sjá stærri skref í þessum efnum núna og ekki bara að fara þá leið að lengja tímabilið sem hægt er að nota þessa gjöf heldur að hækka upphæðina upp í 15.000 kr. Við viljum breikka gildissviðið þannig að hægt sé að nota hana ekki bara á sviði ferða heldur sem menningargjöf. Við viljum að ferðagjöfin geti staðið undir því að flokkast sem fjölskyldugjöf þannig að þessa gjöf fái allir sem eru 12 ára og eldri. Þannig væri um góðan stuðning við fjölskyldur landsins að ræða.
Með þessu erum við að horfa á raunverulega innspýtingu, raunverulegt svigrúm fyrir einstaklinga og fjölskyldur til að gera sér dagamun og með þessu verður vitaskuld til raunveruleg innspýting til fyrirtækja og rekstraraðila í þeim greinum sem hafa orðið fyrir þungu höggi, höggi sem er að reynast bæði þyngra og lengra en við sáum fyrir í upphafi faraldurs. Um 25.000 manns eru atvinnulausir eða á hlutaatvinnuleysisbótum. Þessar tölur geta að líkindum orðið enn hærri í lok árs. Ferðaþjónustan, lista- og menningargeirinn hafa orðið fyrir þyngri áföllum en flestar aðrar greinar þannig að ný ferða-, lista- og menningargjöf að þessari upphæð mun hafa jákvæð efnahagsleg áhrif. Það er einhver falleg hugsun og falleg hugmyndafræði í þessari leið til að mæta áfalli að gera þetta núna í aðdraganda jóla. Við viljum að gjöfin gildi fram á haustið 2021. Þannig örvum við þessar greinar og færum fólki tækifæri til að gera sér glaðan dag í lok þessa árs. Þetta mun reynast þýðingarmikið fyrir ferðaþjónustuna og fyrir menningar- og listastarf í landinu.