störf þingsins.
Forseti. Mig langar að fjalla örstutt um vald og misnotkun á því. Á Alþingi er valdi skipt á þann hátt að einhverjir flokkar ákveða að taka sér meirihlutavald. Það er alls ekki sjálfsagt að það þurfi að gerast og ekki nauðsynlegt til þess að þingbundið lýðræði skili árangri, en það er samt hægt ef meiri hluti þingmanna sammælist um að taka valdið á þann hátt. Þegar ég segi „taka sér vald“ þá á ég við að meiri hluti þingsins ákveður að hópa sig saman til að ákveða meira og minna niðurstöður allra mála. Ef málið kemst ekki í gegnum þennan meirihlutahóp þá kemst það ekki í gegnum þingið, meira að segja þó að allir utan þessa meirihlutahóps ásamt einhverjum hluta innan hans myndi í raun annan meiri hluta í einstöku máli. Tökum nýju stjórnarskrána sem dæmi. Hún nýtur stuðnings meiri hluta landsmanna samkvæmt skoðanakönnunum og þjóðaratkvæðagreiðslu. Landsmenn dreifast hins vegar á milli stjórnmálaflokka sem hver um sig hefur mismunandi skoðun á nýju stjórnarskránni. Þó að meiri hluti kjósenda tveggja af ríkisstjórnarflokkunum styðji nýju stjórnarskrána samkvæmt könnun fyrir síðustu kosningar þá náði sú skoðun ekki framgangi í þeim flokkum í kjölfar kosninga. Annað skipti meira máli að mati þeirra flokka.
En hrós eiga þau sem ávinna sér. Nú eru samningaviðræður fyrir þinghlé og í gærkvöldi var þingfundur bara til klukkan átta. Það var ákvörðun forseta í samstarfi við þingflokksformenn. Meiri hlutinn hefði getað beitt sér fyrir lengri þingfundi, eins og gerist oft á þessum tíma, en gerði ekki. Það er óvenjulegt og ber að vekja athygli á því. Það gerir samningaviðræður málefnalegri og betri. Þegar meiri hlutinn tekur sér nefnilega vald þá ber hann einnig ábyrgð á því að farið sé vel með það. Ég tel það vera málefnalega ákvörðun hjá forseta að framlengja ekki fund og fara eftir hefðbundinni dagskrá meðan á samningaviðræðum stendur. Gagnrýni er nefnilega gagnslaus ef ekki hrósað fyrir það sem er vel gert. Því vil ég hrósa forseta fyrir þessa ákvörðun og hvetja hann áfram í þeirri viðleitni að ná samningum á málefnalegum forsendum.