151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég sem 1. flutningsmaður hef, í fulltingi við aðra þingmenn Sjálfstæðisflokksins, lagt fram frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2. Markmið frumvarpsins er að lögfesta heimild fyrir Landsnet til framkvæmdar við lagningu Suðurnesjalínu 2 í landi sveitarfélaganna Hafnarfjarðar, Voga, Reykjanesbæjar og Grindavíkur. Um er að ræða 33,9 km raflínu þar sem stofnkostnaður er áætlaður 2,3 milljarðar.

Um langa hríð hefur Landsnet áformað byggingu Suðurnesjalínu 2. Framkvæmdin er þjóðhagslega mikilvæg og er ætlað að auka afhendingaröryggi og flutningsgetu raforku fyrir Suðurnes frá höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt skýrslu orkuspárnefndar, raforkuspá 2018–2050 og framtíðaráætlun sveitarfélaga á Suðurnesjum mun eftirspurn eftir raforku aukast hraðar þar en annars staðar á landinu, m.a. vegna aukinna umsvifa á Keflavíkurflugvelli þegar líf færist í eðlilegt horf og örari fólksfjölgun á sér stað.

Áhrif þess þegar Suðurnesjalína 1 fer skyndilega úr rekstri er nær undantekningarlaust rafmagnsleysi á Suðurnesjum með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á heimili og atvinnulíf. Við það verður ekki lengur búið. Suðurnesjalína 2 er framkvæmd sem er mikilvæg út frá þjóðhagslegum hagsmunum og því þarf ekki að fjölyrða um brýna nauðsyn þess að ráðast í hana. Óviðunandi töf hefur nú þegar orðið á málinu sem hefur velkst í kerfinu árum saman. Það er óásættanlegt að íbúar á Suðurnesjum þurfi að líða fyrir þær miklu ógöngur sem leyfisveiting til þessarar framkvæmdar hefur lent í. Því er nauðsynlegt að grípa í taumana og lögfesta heimild fyrir framkvæmdina án aðkomu sveitarfélaganna, til að eyða óvissu.

Virðulegi forseti. Það er von mín að framlagning þessa frumvarps verði til þess að sveitarfélögin geri þetta frumvarp óþarft með því að samþykkja framkvæmdina. Það er kallað eftir öryggi í raforkuflutningum um Suðurnes, það er kallað eftir fjölbreyttara atvinnulífi á Suðurnesjum. Því kalli verður að svara með þessu.