atvinnuleysistryggingar.
Herra forseti. Ég flyt hér nefndarálit með breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar, tekjutengdar bætur. Nefndin hefur fjallað um þetta mál og lagðar eru til tímabundnar breytingar til að bregðast við þeirri stöðu sem er á vinnumarkaði vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Með frumvarpinu er lagt til að í ákvæði til bráðabirgða XVIII í lögum um atvinnuleysistryggingar verði miðað við að heimilt sé að greiða þeim sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins tekjutengdar atvinnuleysisbætur í allt að sex mánuði, að uppfylltum skilyrðum. Þá eru lagðar til breytingar á 9.–11. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XVI í lögunum til samræmis við þær breytingar sem gerðar hafa verið á 1. mgr. ákvæðisins þess efnis að ákvæðið gildi til 31. desember 2020.
Í ljósi framhalds af aðgerðum stjórnvalda til að skapa viðspyrnu við áhrifum heimsfaraldurs kórónuveirunnar, Viðspyrna fyrir Ísland, sem kynnt var 20. nóvember sl., leggur meiri hlutinn, í samráði við félagsmálaráðuneytið, til að breyting verði gerð á frumvarpinu þannig að það nái ekki eingöngu til heimildar til að greiða þeim sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins tekjutengdar atvinnuleysisbætur í allt að sex mánuði.
Í samræmi við aðgerðir stjórnvalda leggur meiri hlutinn til að í stað dagsetningarinnar 31. desember 2020 í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XV í lögum um atvinnuleysistryggingar komi: til og með 31. desember 2021. Með þessu er framlengdur réttur á 6% óskertum grunnatvinnuleysisbótum með hverju barni. Þetta skiptir verulegu máli og er breyting sem þingheimur samþykkti hér á vordögum og er nú framlengd.
Í samræmi við aðgerðir stjórnvalda leggur meiri hlutinn einnig til að í stað dagsetningarinnar 31. desember 2020 í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XVI í lögum um atvinnuleysistryggingar komi: 31. maí 2021. Leggur meiri hlutinn jafnframt til breytingu varðandi atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli og breyttar dagsetningar í 9., 10. og 11. mgr. ákvæðisins til samræmis við framangreint eða til og með 31. maí 2021.
Þá leggur meiri hlutinn til breytingar á dagsetningunni 1. janúar 2021 í 3. mgr. ákvæðis til bráðabirgða III í lögum um Ábyrgðasjóð launa, og í stað hennar komi þar dagsetningin 1. júní 2021. Þetta er einnig til samræmis, að óbreyttu félli ákvæðið annars úr gildi 1. janúar nk. Hér er í raun verið að lengja hina svokölluðu hlutabótaleið fram til loka maí og það er mikilvægt. Mikið hefur verið kallað eftir því í samfélaginu að það sé aukinn fyrirsjáanleiki. Við kostnaðarmat á úrræðinu, eða þeim breytingum sem er verið að gera, fékk nefndin minnisblað frá félagsmálaráðuneytinu þar sem kemur fram að hámark aukningarinnar geti orðið allt að 6,7 milljarðar á næsta ári.
Með vísan til framangreinds leggur meiri hlutinn til að málið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef rakið hér og eru tilteknar í nefndarálitinu.
Undir álitið skrifa eftirtaldir hv. þingmenn: Lilja Rafney Magnúsdóttir, Anna Kolbrún Árnadóttir, með fyrirvara, Ásmundur Friðriksson, Guðmundur Ingi Kristinsson, með fyrirvara, Halla Signý Kristjánsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Vilhjálmur Árnason.