Hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans og vinnu í þessu stóra og mikilvæga máli sem er að koma einhverju skipulagi á umgjörð utan um hálendið, hjarta Íslands. En það er eitt sem ég hef áhyggjur af í þessu og það er að ef allt raungerist, öll þau tækifæri og það sem stærsti þjóðgarður Evrópu býður upp á, hvort við séum tilbúin til að taka á móti þeim tækifærum. Höfum við tryggt náttúruvernd á hálendinu þannig að fjölfarnir ferðamannastaðir, sem yrðu enn fjölfarnari við stærsta þjóðgarð Evrópu, geti tekið við því strax og þjóðgarðurinn er tilbúinn? Getum við tryggt öryggi þeirra gesta sem koma á þetta hálendissvæði? Getum við tryggt upplifun gesta svo að þeir mæli með Íslandi áfram? Það er þetta sem ég hef áhyggjur af og langar að spyrja hæstv. ráðherra um.