151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[15:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra framsöguna. Það eru svo sem engar fréttir í því að ég hef haft töluverðar efasemdir um þetta mál og hvernig það er fram sett og hvernig ætlunin er að ná ýmsum af þeim annars ágætu markmiðum sem þarna eru undirliggjandi. En ég veitti því athygli að í framsögu ráðherrans skautaði hann tiltölulega létt fram hjá efnahagslegum áhrifum málsins sem hæstv. ráðherrann gerði mjög mikið úr í allri umræðu í fyrra þar sem óteljandi oft var vísað til að mynda til þess að hver króna sem lögð væri til þjóðgarða skilaði sér 23 sinnum til baka, sem sagt að hver króna 23-faldaðist við það að vera lögð inn í þjóðgarð sem þennan.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað veldur því að minni áhersla virðist vera lögð (Forseti hringir.) á þetta atriði núna? Var bara ekki pláss fyrir það í ræðunni eða hefur eitthvað breyst frá því að mat hans kom fram (Forseti hringir.) í fyrra?