151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[15:56]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég hef lagt mjög mikla áherslu á þessi efnahagslegu áhrif og hef sagt að þær rannsóknir sem hafa farið fram, bæði á Íslandi en líka í Bandaríkjunum og í Finnlandi, hafi sýnt fram á að fjármagn sem sett er í friðlýst svæði skili efnahagslegum ávinningi. Það hefur verið sýnt fram á það hér með rannsóknum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Það hefur verið sýnt fram á það, eins og ég sagði, í Finnlandi með sömu aðferðafræði og í Bandaríkjunum. Það er því í sjálfu sér engin breyting þar á. Mér skilst að samkvæmt rannsóknum Hagfræðistofnunar hafi þessi tala, 1 á móti 23, ekki verið alveg rétt, hún hafi verið eitthvað lægri. Ég er ekki alveg klár á því hversu mikið það er, mér ekki kunnugt um það. En það breytir því ekki að um talsverðan og umtalsverðan (Forseti hringir.) ávinning er að ræða, líkt og hefur áður komið fram. Sá sem hér stendur er ekki að reyna að skauta (Forseti hringir.) fram hjá einu eða neinu í því atriði heldur hefur einfaldlega dregið það fram ítrekað að efnahagslegur ávinningur sé af þessu.