151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[15:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og skárra væri það nú, ég vona að við hér á þinginu setjum ekki mikið af fjármunum í verkefni sem engin arðsemi er af. Hitt atriðið sem mig langaði til að spyrja hæstv. ráðherra út í úr framsöguræðunni snýr að því sem ráðherrann kom inn á varðandi ákvæði sem skýra samspil rammaáætlunar og hálendisþjóðgarðs. Þá langar mig bara að spyrja beint: Verður að mati ráðherra hægt að byggja upp nýja orkunýtingarkosti innan þjóðgarðsmarkanna verði frumvarpið samþykkt eins og það er?