Hálendisþjóðgarður.
Hæstv. forseti. Mig langaði að koma inn á annað atriði í ræðu hv. þingmanns, sem hefur með tvennt að gera í rauninni. Hv. þingmaður nefndi hefðbundnar nytjar. Það var atriði sem var mikið rætt á fundum mínum úti um allt land. Ég vildi nefna sérstaklega að í kjölfar þeirrar umræðu og í kjölfar þeirrar umræðu sem hin þverpólitíska nefnd átti var ákveðið að inn í frumvarpið kæmi sérstök lagagrein sem tekur akkúrat á þeim málum, að hefðbundnar nytjar séu heimilar á þessu svæði. Auðvitað þurfa þær að vera sjálfbærar eins og annars staðar og eins og önnur nýting á landinu.
Síðan langar mig að nefna aðeins varðandi fjármagn, því að hér féllu orð eins og framúrkeyrslur og fleira, og vil nefna það sérstaklega varðandi Vatnajökulsþjóðgarð og reyndar náttúruverndina í heild sinni að þar hefur miklu fjármagni verið bætt inn, m.a. í aukna landvörslu og uppbyggingu innviða í landsáætlun sem þjóðgarðarnir sérstaklega eru að njóta núna, sem er mjög ánægjulegt að sjá gerast og er víða að gerast. Við erum að byrja að byggja þjónustumiðstöð eða gestastofu bæði í Snæfellsjökulsþjóðgarði og á Kirkjubæjarklaustri, fjölmargar framkvæmdir sem hafa átt sér stað sem lengi hefur verið beðið eftir. Ég nefni líka fráveitumál í Skaftafelli o.s.frv. Við munum að sjálfsögðu halda þessari umræðu áfram og hv. þingmenn í nefndinni eftir 1. umr. og ég hlakka bara til að fá að takast á við og taka þátt í því að ræða málið áfram með ykkur þar.