151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[16:14]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir þessa fyrirspurn og umræður, sem eru ágætar. Við erum sammála um að tryggja hefðbundnar nytjar í þjóðgarði. Ráðherra drap líka aðeins á fjölsótta fundi. Þeir voru mjög áhugaverðir. Ég sótti fund í Aratungu sem var afar fjölsóttur og mín upplifun á þeim fundi var að ráðherrann upplýsti sitt mál ágætlega en það voru samt kannski bara fleiri ósvaraðar spurningar eftir fundinn en áður, það var svona mín upplifun af því að tala við fólkið í sveitinni. Við þurfum að bæta úr því og við þurfum hér í þinginu að temja okkur það því að þetta er ekki í eina skiptið núna sem við erum gagnrýnd fyrir að samráð sé ekki nógu mikið. Og það er alveg sérstaklega mikilvægt í svona viðkvæmu máli að við höfum samráð. Fólkinu fækkar í sveitunum, það er miklu meiri þyngd fyrir það að hugsa um hálendið, smala og ganga þar um og það leggur gríðarlega mikið á sig til að sinna þessu landsvæði sem er því og auðvitað okkur öllum svo kært. Það hefur líka áhyggjur af fjármagni, hvað þetta muni allt saman kosta, hver muni borga öll störfin, hverjir muni vinna í gestastofunum. Þær eru auðvitað frábærar og verða góðir staðir fyrir ferðamenn að koma á en auðvitað kostar þetta allt saman mikla peninga. Við þurfum að sjá fram úr því núna og ekki síst í því ástandi sem nú ríkir í samfélaginu og mun ríkja á næstu árum meðan við vinnum okkur út úr því, verði það nú sem fyrst, þannig að við séum ekki að þyngja þann róður of mikið.