151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[16:36]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Núverandi stjórn og nýting miðhálendisins ræðst fyrst og fremst af skipulagi og áætlanagerð, aðalskipulagi sveitarfélaga og svæðisskipulögum, landsskipulagi og áætlanagerð á landsvísu. Árið 1998 voru sett lög um þjóðlendur. Það mál var mjög umdeilt á sínum tíma og margt sagt í þeirri umræðu. Það hefur tekist að slípa málsmeðferðina á því máli svolítið í gegnum tíðina og auka traust á milli aðila, þ.e. þeirra sem búa á þeim svæðum sem að þjóðlendum snúa og ríkisvaldsins. Þó er ekki öllum málum ólokið í því. Það er mikilvægt að það komi fram að í greinargerð með frumvarpi til þeirra laga segir að sveitarfélögin hafi hvert á sínu svæði farið með og sinnt þessum landsvæðum enda hafi þau fallið innan stjórnsýslumarka þeirra í flestum tilvikum. Þar er lagt til að forræði á ráðstöfun lands og landsgæða innan þjóðlendna verði skipt milli forsætisráðherra og sveitarfélaganna. Og þannig er þetta í dag. Þjóðlendur eru því alls ekki í reiðileysi. Þær eru undir þessari stjórn sem hefur verið að þróast og þroskast á þessum tíma.

Á þeim tíma þegar þjóðlendulögin voru sett var líka alveg sérstaklega rætt að sú miðhálendislína sem var dregin, þau mörk sem dregin voru, yrði aldrei notuð í neinu öðru samhengi. Um það var rætt alveg sérstaklega af hálfu þeirra sem þá fjölluðu um málið og tóku þessar ákvarðanir. Það er því í raun úr öllu samhengi að við skulum vera að ræða um svo mikilvægt mál sem stofnun hálendisþjóðgarðs er og miða við þessi mörk, miðhálendislínuna. Hún var aldrei dregin að neinu leyti út frá þeim sjónarmiðum sem gilda um þjóðgarð og þá verndun og nýtingu sem á að vera innan hans.

Það kemur fram þingsályktunartillaga um stofnun hálendisþjóðgarðs, held ég fyrst árið 2015. Hún var ekki afgreidd á þinginu. Síðan voru aftur lagðar fram tillögur, ég held árið 2017, og síðan komið á fót ráðherraskipaðri nefnd árið 2018. Á þeim tíma hefur aldrei verið afgreidd þingsályktunartillaga um að stofna til þessa gríðarmikla verkefnis. Þingið hefur í sjálfu sér aldrei tekið umræðu um það hvernig menn sæju þetta fyrir sér, hvert við ætluðum að stefna með þessu og lagt línurnar í þeirri vinnu sem fram undan væri í því viðamikla verkefni. Það er auðvitað mjög til umhugsunar, virðulegur forseti, að við skulum leggja upp í þessa miklu vegferð og að bakland innan hópsins sem um þetta fjallar skuli ekki hafa verið tryggt með einhverri umfjöllun á Alþingi um það sem fram undan var. Engin greining hefur farið fram á náttúruverndargildi í sjálfu sér, þ.e. heildarhagsmunum.

Ef við berum þetta saman við nálgunina þegar Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður á sínum tíma þá var samþykkt þingsályktunartillaga 1999 um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og átta árum síðar, eða árið 2007, voru lög um stofnun þjóðgarðsins sett, eftir að málið hafði gerjast í þessari umræðu. Þetta er til viðmiðunar um það hversu, að hluta til, óvönduð vinnubrögð við erum að ástunda í svona stóru máli.

Margt þarf að skoða þegar við stígum svona stór skref, t.d. viðmiðanir, staðla og kröfur um vernd sem við ætlum að gera. Hvernig spila jaðarsvæðin inn í þetta og t.d. nýting á orkuauðlindum, aðgangur ferðaþjónustu og svo margir þættir; nýting heimamanna á beitarlandi, veiðar, ferðir almennings, útivistarfólks o.s.frv.? Hvað þýðir það að fara inn í þjóðgarðaflokkun alþjóðaþjóðgarðastofnunarinnar? Hvaða valkostir eru þar mögulegir? Hversu langt eigum við að ganga? Ætlum við að stíga skrefið að fullu strax í byrjun? Þjóðgarður eins og lagt er upp með hann í þessu frumvarpi er mjög varanleg ráðstöfun þar sem náttúruverndarhagsmunir hafa forgang. Við þurfum að reyna að svara því hvert þessi starfsemi þjóðgarðsins leitar síðan. Margir hafa virkilega miklar áhyggjur af þessu út frá mismunandi hagsmunum; þeir sem búa á svæðum sem eiga lönd að hálendinu, íbúar þessara sveitarfélaga vegna nytja og annarra hagsmuna sem þeir hafa af því, hinn fjölmenni hópur Íslendinga sem er farinn að ferðast um hálendið, bæði að sumri og vetri, þeir sem stunda atvinnustarfsemi tengda ferðaþjónustu og þeir sem nýta orkuauðlindir landsins. Það má í raun lengi fjalla um hver það er sem metur og skammtar þýðingu annarra hagsmuna. Svo mörgu er ósvarað, virðulegi forseti.

Þeir sem standa að orkunýtingarmálum hafa miklar áhyggjur af þessu. Það hefur svo sem komið fram. Auðvitað er órjúfanlegur hluti af umræðunni um hálendisþjóðgarð samspilið við rammaáætlun. Þar eigum við langt í land. Við erum í raun með rammaáætlun í skötulíki og okkur hefur ekkert miðað á undanförnum árum að ræða um það á málefnalegum nótum hvert við ætlum að stefna í nýtingu orkuauðlinda okkar og hvaða tækifæri menn sjá í því. Þó hafa sviðsmyndirnar breyst alveg gríðarlega mikið á tiltölulega skömmum tíma. Þegar við vorum að ræða rammaáætlun fyrir fimm árum datt engum í hug að vindorka gæti keppt við þá orkukosti sem við eigum. Þær sviðsmyndir eru allt aðrar í dag. Þá höfðum við ekki fengið þau eldsumbrot sem við fengum á Vatnajökulsvæðinu fyrir nokkrum árum og hafa gjörbreytt sviðsmyndunum í því hversu mikilvægt það verður út frá þjóðhagslegum öryggissjónarmiðum að dreifa raforkuframleiðslu víða um land. Hvernig verður þetta samspil? Hefur farið fram mat á framtíðarhagsmunum annarrar nýtingar? Það hefur ekki farið fram og ekki var gert ráð fyrir því í þeirri vinnu sem lagt var af stað með í þessu mikla verkefni. Það var í raun bara settur saman hópur sem átti að meta og greina tækifæri í þjóðgarðinum. Það var ekki greining á núverandi stöðu, ekki greining á því sem tapast heldur bara greining á tækifærunum í þjóðgarðinum. Það var það sem lagt var upp með.

Aðrar áætlanagerðir sem við gerum eru tímabundnar. Þannig gilda t.d. skipulagsáætlanir, aðalskipulag og landsskipulag í 12 ár, rammaáætlun sem fjallar um vernd og nýtingu orkuauðlindanna okkar á að endurskoða á fjögurra ára fresti, kerfisáætlun Landsnets á að endurskoða næst 2029, samgönguáætlun er til fimm ára og 15 ára og fjarskiptaáætlun er til 2033. En við stígum þetta stóra skref án þess að hafa nokkur ákvæði um að við ætlum að endurskoða markmiðin, fara yfir stöðuna. Þegar á að úthluta eða ráðstafa 30–40% hluta af landi hlýtur að vera eðlilegt að taka a.m.k. eina umferð af endurskoðun áætlunarinnar með tilliti til annarra hagsmuna, möguleika og framtíðarnýtingar. Hvernig verður fjármögnun og rekstri þjóðgarðs hagað? Þessu er ósvarað.

Hæstv. ráðherra gerði svolítið úr því áðan að uppbyggingin yrði mikil, að þegar væri byrjað að byggja gestastofur á Kirkjubæjarklaustri og víðar. En þarf endilega að vera þjóðgarður svo að ríkið byggi gestastofur eða móttökustaði fyrir erlenda ferðamenn og skipuleggi hálendið að öðru leyti í samvinnu við heimamenn? Hvert á hlutverk ríkisins að vera í þessari uppbyggingu og rekstri þjónustu? Er það betur komið í höndum einkaaðila? Er hálendið í stórhættu vegna þeirra umsjónarmanna sem hafa verið með það á undanförnum árum og áratugum, jafnvel árhundruðum? Er það í stórhættu? Hver verða áhrif þjóðgarðsstjórnsýslu á uppbyggingu og nýsköpun í ferðaþjónustu? Mikið er gert úr að ákveðin tækifæri eigi að vera fólgin í því að setja á laggirnar hálendisþjóðgarð, stærsta þjóðgarð í Evrópu. Við sjáum deilurnar sem eru að rísa núna, bara út af aðgengi ferðamanna í Vatnajökulsþjóðgarði og kvótasetningu í þeim efnum. Kallast fjölgun ferðamanna og takmörkun á aðgengi eitthvað á? Hvernig ætla menn að haga því? Hæstv. ráðherra hefur áður sagt, ég held jafnvel áður en hann kom í stól ráðherra, að það yrði að takmarka aðgengi að hálendinu. Hálendið þyldi bara ákveðið. Auðvitað liggur það í augum uppi. Þegar leitað var eftir leyfi til að byggja upp Kjalveg, sem er náttúrlega algerlega óboðlegur og heftir í raun marga í að geta farið inn á hálendið og notið þess, sagði Umhverfisstofnun: Ja, uppbyggður vegur, hann hefur svo mikil áhrif á umhverfi sitt að það er ekki hægt að hafa hann. Eru þetta sjónarmið sem kallast á? Er þetta ekki eitthvað sem við þurfum að ná utan um?

Mörgum virðist hugmyndin um hálendisþjóðgarð snúast um að ná yfirráðum, að það sé ekki nauðsyn vegna náttúruverndar eða ókosta núverandi kerfis. Hraði málsins og aðferðafræði við ákvarðanatöku á vegum hins opinbera er fordæmalaus. Í svona stóru máli er hún fordæmalaus og í raun og veru alveg galið að við skulum láta okkur detta það í hug að við getum snýtt einhverju hér út á þessum skamma tíma sem hefur aldrei áður hlotið fullnaðarafgreiðslu af hálfu Alþingis. Mögulega er hugmyndin ekki góð. Ég held reyndar að hún sé góð. Ég er mjög hrifinn af því að fara í eitthvert samspil þarna. En meðan við höfum ekki greint ókostina, höfum ekki greint áhrif og aðra hagsmuni, meðan sú greining hefur ekki farið fram heldur bara algerlega einhliða greining, getum við ekki svarað spurningunni á fullnægjandi hátt. Eru til að mynda afmarkaðar friðlýsingar, m.a. vegna víðerna, ef til vill betri? Væri það betri niðurstaða? Erum við búin að fórna lýðræðislegri aðkomu, þekkingu og ábyrgð nærsamfélaga á þessu verkefni? Hverjir eru hagsmunir framtíðarkynslóða þessa lands? Erum við að taka ákvarðanir sem hafa til að mynda áhrif á eflingu ferðaþjónustu, ferðalög og það að njóta hálendisins, það að geta nýtt orkuauðlindirnar í breyttum heimi þar sem gríðarleg tækifæri liggja í því að Ísland geti orðið leiðandi í því að hætta notkun jarðefnaeldsneytis? Við vitum hvaðan við getum tekið orkuna. Við getum hreinlega orðið útflutningsaðilar á orku í gegnum til að mynda framleiðslu á vetni.

Það er áhyggjuefni, virðulegur forseti, að þrátt fyrir samráðið sem hæstv. ráðherra talar fyrir upplifi ég að ágreiningurinn um þetta mikilvæga mál hafi aukist. Margir upplifa að það eigi að reyna að borða fílinn svolítið í einum bita. Ég held að við þessar aðstæður hafi verið óskynsamlegt að leggja svo bratt af stað í þetta mikla verkefni. (Forseti hringir.) Í stjórnarsáttmála er fjallað um málið (Forseti hringir.) en ekki um útfærsluna. Ég hef gert hér grein fyrir ákveðnum fyrirvörum (Forseti hringir.) sem ég hef við málið.