151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[17:07]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir ræðuna. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í fyrirvara Framsóknarflokksins. Ég man ekki eftir að hafa séð jafn ítarlega og mikla fyrirvara ríkisstjórnarflokks við mál sem hefur farið í gegnum ríkisstjórn og þingflokka ríkisstjórnarflokka. Hér eru sjö umfangsmiklir fyrirvarar og heill aragrúi af viðbótaráherslupunktum. Mig langar að spyrja hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur hvort Framsóknarflokkurinn sé ekki í raun að segja með þessu að málið sé ekki fullunnið, að það hefði átt að vinna mun meira og ítarlegar í ráðuneytinu af ráðherranum áður en það kom hingað inn í þingið. Svona fyrirvararuna þýðir raunverulega væntanlega ekkert annað en það að Framsóknarflokkurinn styðji ekki þetta mál. Af ræðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins að dæma, þeirra sem helst fara fyrir Sjálfstæðisflokknum í málefnum sem tengjast miðhálendisþjóðgarðinum, virðist varla vera öflugur stuðningur við hugmyndina þar. Er þetta þá á endanum bara þjóðgarður Vinstri grænna?

Spurningin gengur út á þessa umfangsmiklu fyrirvara. Er ekki hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir bara að segja: Við styðjum ekki þetta mál? Raunar formaður flokksins líka, fyrirvararnir er settir fram af honum. Væri ekki betur heima setið en af stað farið, að senda málið aftur til baka til ráðherra, fá það unnið betur og sjá hvort tilefni eða vilji er til að taka tillit til þessara athugasemda áður en við setjum þingið á hliðina í þeim slag?