Hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrirvararnir endurspegla fyrst og fremst hversu margþætt málið er. Það kemur inn á ótrúlega marga þætti. Fyrirvararnir eru jafnframt veganesti mitt inn í vinnuna í umhverfis- og samgöngunefnd sem segir mér að ekki verði einfalt að fjalla um málið þar. Þetta er umfangsmikið verkefni. Eins og ég kom inn á í ræðu minni kalla sumir af þessum fyrirvörum líka á ákveðna vinnu utan þingsins, eins og að greina betur hversu hratt sé hægt að vinna þetta margslungna verkefni. Hvernig er raunhæf áætlun? T.d. má horfa á Vatnajökulsþjóðgarð og hve langan tíma tók að ljúka stjórnunar- og verndaráætlunum fyrir öll svæði. Hvenær var atvinnustefnan tilbúin? Það þarf að fara í þessa vinnu. Hvort hún kemur einhvern veginn inn til þingsins eða hvort hún verður til hliðar er útfærsluatriði. Við þurfum t.d. að fá tækifæri til að átta okkur á því í umhverfis- og samgöngunefnd hvert samspil reglugerðar um sjálfbæra nýtingu lands er við frumvarpið. Fyrirvararnir endurspegla fyrst og fremst hvað þetta er flókið og teikna upp, kannski á býsna einfaldan hátt, tel ég, hvað það er sem þarf að huga að.