Hálendisþjóðgarður.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get bara sagt strax að ég er mikill áhugamaður um skilvirkni, sérstaklega þegar kemur að ríkisrekstri. Nú veit ég að hv. þingmaður er mikill áhugamaður um skýrslur Ríkisendurskoðunar og ef við horfum á þær trakteringar sem Vatnajökulsþjóðgarður fékk í úttekt Ríkisendurskoðunar þá hræða sporin í þessum efnum. Þar var ekki bara skilvirkninni ábótavant heldur miklu fleiri þáttum á þeim tímapunkti. Það hvernig til tókst framan af með Vatnajökulsþjóðgarð ætti eitt og sér að nægja okkur til að segja: Við skulum hið minnsta skoða það vandlega hvort skynsamlegt sé að gera þetta með þessum hætti. Ég held að hægt sé að ná þessum skilvirknisjónarmiðum, og meira og minna öllum þeim markmiðum sem tilgreind eru sem markmið með lagasetningunni, með allt öðrum og hagkvæmari hætti sem tryggir betra flæði, betri nýtingu fjármuna og meiri skilvirkni og sem lokar auðvitað líka fyrir þann mikla ágreining sem er verið að efna til í tengslum við skipulagsvald sveitarfélaga, aðgengi, umgengnisheimildir fyrirtækja og einstaklinga og útivistarfólks og þar fram eftir götunum. Þannig að til að svara spurningunni sem ég held að hv. þingmaður hafi verið að forma og spyrja, hvort ég telji ekki nauðsynlegt að forma þetta í stofnun til að ná utan um alla þessa þætti — nú hristir hv. þingmaður hausinn, það er þá ekki í fyrsta skipti sem við skiljum ekki hvor annan. En ég tel ekki nauðsynlegt að búa til nýja ríkisstofnun sem heitir hálendisþjóðgarður til þess að ná þeim fram.