Hálendisþjóðgarður.
Frú forseti. Við fjöllum hér um stórt og mikið mál í dag. Það er mikið undir: Landið allt. Sem betur fer eigum við Íslendingar því láni að fagna að hafa átt talsmenn fyrir landið, vini náttúrunnar, vini umhverfisins um áratugi. Það hefur allt verið á grundvelli einstaklings- og félagaframtaks og þau samtök og einstaklingar hafa unnið með sínum hætti gott starf. Við erum hér komin til að fjalla um í 1. umr. frumvarp um hálendisþjóðgarð, mál af sama toga og lagt var fram á 149. þingi þar sem þetta frumvarp var með ofurlítið öðrum brag, öðru yfirbragði. Á því hefur verið gerð bragarbót eða farið fram á því gagnlegar lagfæringar í ljósi umræðunnar og að öðru leyti hefur það fengið svolitla andlitslyftingu.
Við höfum hugað að landinu okkar og náttúrunni í áranna rás. Það hefur verið nokkrum tilviljunum háð hvernig við höfum staðið að því. Rétt er að geta þess áður en lengra er haldið að áður hefur verið lagt fram mál á Alþingi um miðhálendisþjóðgarð, eins og hæstv. ráðherra kom raunar inn á í inngangi sínum í dag, þingsályktunartillaga um þjóðgarð á miðhálendinu. Á 145. löggjafarþingi lögðu þingmenn Samfylkingarinnar fram tillögu hér á hinu háa Alþingi sem gekk út á að umhverfis- og auðlindaráðherra yrði falið að láta undirbúa friðlýsingu miðhálendis Íslands sem þjóðgarðs sem kynna átti síðan á vorþingi 2016, í því augnamiði að stefnt yrði að stofnun þjóðgarðs árið 2018. Hvati þess var m.a. skoðanakönnun sem Gallup vann fyrir Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands, sem var framkvæmd í mars 2015, þar sem tæplega 65% svarenda lýstu sig hlynnt stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands og raunar sögðust ríflega 12% vera andvíg. Það hljómar kannski einkennilega í eyrum þeirra sem hlusta á umræðuna, a.m.k. að hluta til, því að það sama virðist ekki vera upp á teningnum í dag.
Á landsfundi Samfylkingarinnar um svipað leyti, árið 2015, var síðan lýst yfir stuðningi við tillögur náttúruverndarsamtaka þar sem ég trúi, ef mér skjöplast ekki, að m.a. hafi núverandi hæstv. ráðherra verið forgöngumaður. Þarna samþykktum við tillögu um þjóðgarð á miðhálendinu og tillagan var síðan lögð fram á 145. þingi eins og fyrr var sagt. Málið náði því miður ekki fram að ganga á þeim tíma en er meira en lítið tengt áherslum Samfylkingarinnar í umhverfis- og náttúruvernd.
Með fyrirliggjandi frumvarpi nú er stigið sem fyrr mikilvægt skref áfram í þeirri viðleitni að ná sátt og sameiningu um það hvernig við viljum, hvernig við eigum og hvernig við þurfum og munum haga samskiptum við náttúru okkar og landið sem nytjað hefur verið, eftir atvikum ofnýtt og vannýtt með sínum hætti í aldanna rás. Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu mun skilgreint miðhálendi ná yfir um 40% af flatarmáli landsins, og verða eitt stærsta samfellda svæðið í Evrópu þar sem ekki er föst búseta ef þetta frumvarp verður að lögum hér á þingi. Innan miðhálendisins eru mestu víðerni landsins en að sama skapi fá mannvirki og dreifð. Hér eru því um að ræða einhver stærstu víðerni sem fyrirfinnast í Evrópu í nútímanum og verðmæti þeirra í sjálfu sér mikil. Og fyrr en varir trúi ég að við munum fara að fjalla um þetta málefni eins og sérstakt fyrirbæri á heimsvísu. Miðhálendið þykir nefnilega einstakt af náttúrunnar hendi og innan þess er mikill fjöldi af náttúru- og menningarperlum, minjum og samfelldum svæðum sem sum hver njóta verndar að einhverju leyti.
Fjallað hefur verið um það af hálfu Alþingis, stjórnvalda, hagsmunaaðila og almennings hvert eigi að vera framtíðarfyrirkomulag við stjórnun landnýtingar á þessu svæði og öðrum og hvort yfirleitt eigi að vera stjórnun á þeim þáttum. Umræðan hefur m.a. snúist um nýtingu, verndun og uppbyggingu innviða, gjarnan í ljósi stöðugt vaxandi fjölda ferðamanna sem koma til landsins og kjósa að njóta náttúrunnar í frelsi frá erli dagsins. Af þeim sökum er sérstök ástæða til að koma á skipulagi og reglu varðandi þessi atriði án þess að nokkuð sé verið að hnýta í þá aðila sem hafa nytjað eða gengið um svæðið áður og fyrr og gert það með sóma á margan hátt.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að náið samráð hafi verið haft við hagsmunaaðila, þar með talin sveitarfélög sem flest styðji efni frumvarpsins en þó ekki öll. Þau sem ekki gera það hafa aðallega áhyggjur af því að skipulagsvald þeirra muni færast yfir til stjórnar hálendisþjóðgarðsins í formi stjórnunar- og verndaráætlunar. Skipulagsvald sveitarfélaga sé stórlega skert og sú þróun haldi stöðugt áfram að skerða meira sjálfstæði landsbyggðarsveitarfélaga. Hæstv. ráðherra hefur í máli sínu í dag skýrt þetta atriði mjög og vísað því á bug.
Önnur sveitarfélög töldu stofnun hálendisþjóðgarðs ekki tímabæra þar sem enn væri ekki búið að leysa vandamál sem tengdust Vatnajökulsþjóðgarði. Þá komu fram þau sjónarmið að með stofnun hálendisþjóðgarðs væri jafnvel verið að setja hömlur á ferðafrelsi einstaklinga. Fulltrúar orkufyrirtækja gerðu líka kröfu um að áframhaldandi rekstur og þróun virkjunarsvæða yrði tryggð innan þjóðgarðsins. Það má heita næsta víst að miklar tröllasögur hafa verið í gangi eða misskilningur varðandi málefni sem ég tel að ráðherra hafi lagt sig fram um að eyða eða skýra á þeim tíma sem liðið hefur frá því að fyrra frumvarp var lagt fram og þar til nú. Af samskiptum við einstaklinga og félagasamtök hvarvetna í samfélaginu, þar sem ég þekki til, má ráða að sterkar skoðanir eru á þessu frumvarpi, bæði hjá þeim sem gjalda varhuga við að feta frekar inn á þessa slóð, og við höfum heyrt þær raddir hér úr ræðustól Alþingis í dag, og svo líka hjá þeim aðilum sem telja þetta bera vott um framsýni og alúð gagnvart vernd einstakrar náttúru á Íslandi.
Frú forseti. Verði frumvarpið að lögum verður Vatnajökulsþjóðgarður sem stofnun lagður niður en hálendisþjóðgarður sem ný og sambærileg stofnun settur á fót. Tekið er þó fram að engin breyting verður á formlegri umgjörð Vatnajökulsþjóðgarðs þar til hálendisþjóðgarður hefur verið friðlýstur og sett um það reglugerð. Gert er ráð fyrir óbreyttu fyrirkomulagi varðandi aðra þjóðgarða í þessu frumvarpi. Lagt er til að stjórnskipulag hálendisþjóðgarðs verði svipað og í Vatnajökulsþjóðgarði en vegna stærðar hans yrði það nokkuð flóknara en annarra þjóðgarða. Um stjórnun þjóðgarðsins er fjallað í II. kafla frumvarpsins. Þar er getið um að þjóðgarðinum verði skipt upp í sex rekstrarsvæði, eins og hæstv. ráðherra kom inn á í ræðu sinni, og að aðild sveitarfélaganna yrði tryggð á hverju rekstrarsvæði með skipan eins fulltrúa. Í þessari stjórn munu sitja ellefu fulltrúar. Í frumvarpinu er nánar fjallað um hlutverk stjórnar, forstjóra, rekstrarsvæði, umdæmisráð og þjóðgarðsverði. Ekki verður annað ráðið af frumvarpinu en að stofnun þjóðgarðastofnunar heyri sögunni til. Hæstv. ráðherra hefur haft á orði að sjónarmið þeirra sem mestra hagsmuna eiga að gæta í málefnum sem tengjast frumvarpi þessu hafi nálgast. Teknir hafi verið burt einhverjir af stærstu ásteytingarsteinunum sem voru í frumvarpinu sem lagt var fram á 149. þingi um þjóðgarðastofnun og þjóðgarða, sem nokkur umræða varð um og voru menn alls ekki á eitt sáttir. Ráðherra hefur nefnt að hann hafi lagt sig fram um það að fara um og ræða við hagsmunaaðila og skýra sjónarmið og það er vel.
Þetta frumvarp sem ber yfirskriftina Hálendisþjóðgarður er hér til 1. umr., og fær nú að nýju viðeigandi og vandaða umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar þar sem vænta má að ýmis sjónarmið verði uppi höfð. Málið hlaut mikla athygli þegar það var lagt fram á 149. þingi og talsvert mikið fjallað um það í samfélaginu og hefur sú umfjöllun raunar staðið yfir samfellt frá þeim tíma. Tilfinningin er að sú umfjöllun hafi á stundum verið nokkuð ýkt, nokkuð öfgakennd og stjórnast af miklum tilfinningahita og það er eðlilegt. Þeir sem þekkja landið sitt best bera til þess hlýjan hug og sterkar tilfinningar.
Það verður fróðlegt og spennandi að fá að taka þátt í umfjöllun um frumvarpið í umhverfis- og samgöngunefnd. Eins og ráðherra hefur ítrekað nefnt í ræðu og riti telur hann hér vera á ferðinni mikilvægt frumvarp, hagsmunamál fyrir alla landsmenn og sannkallað þjóðþrifamál og undir það er tekið.