151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[18:04]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvað er nægilegt samráð? Það er eilíflega mat, seint verður hægt að ræða persónulega við hvern og einn hlutaðeigandi hugsanlega. Ég þekki ekki nákvæmlega hvaða samráð hefur átt sér stað og í hversu miklum mæli. Ég veit hins vegar til þess að hæstv. ráðherra hefur leitast við, með sínu samstarfsfólki, að upplýsa og kynna efni, tilgang og markmið með stofnun þessa þjóðgarðs. En við verðum kannski að líta svolítið til sérstöðu Íslendinga að mörgu leyti. Þeir hafa, sérstaklega til sveita, mjög sterkar tilfinningar, sterkar skoðanir og sterkar hefðir gagnvart umgengni við landið og telja eignarhald, tengsl eða umráðarétt sem þeir telja sig hafa við landið nánast heilagan að mörgu leyti. En auðvitað verður aldrei hægt að ná fullkomnu samkomulagi allra aðila um þetta. Ég held að það sé kannski hugmyndafræði sem væri æskilegust. En hagsmunir landsins, hagsmunir náttúrunnar og hagsmunir framtíðarinnar liggja í því að við náum að halda utan um þetta því að hluti af landinu þarf gæslu, þarf varðveislu, bara gagnvart gróðrinum, svo dæmi sé tekið.