Hálendisþjóðgarður.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp hæstv. umhverfisráðherra um stofnun hálendisþjóðgarðs. Afstaða mín í þessu máli er einföld: Nei, ég tel þetta allt of stórt skref til að stíga núna. Ég tel t.d. að afla eigi meiri reynslu í rekstri stórra þjóðgarða eins og Vatnajökulsþjóðgarðs og nýta þá reynslu til að undirbúa næstu skref við stofnun þjóðgarða eða þjóðgarðs, sem ég er hlynntur. Auðvitað er ég hlynntur því að fara vel með landið okkar, ganga vel um það og vernda eins og unnt er fyrir ágangi mannsins, en einnig að nýta það skynsamlega. Hefur hugmyndin um stofnun minni þjóðgarða á miðhálendinu t.d. verið skoðuð svo vel sé áður en þetta skref er stigið? Ef litið er til reynslunnar af Vatnajökulsþjóðgarði, hverjar eru staðreyndirnar um rekstur þess stóra þjóðgarðs? Hver er afstaða sveitarfélaganna sem liggja að þeim stóra þjóðgarði til hans? Er sú samvinna sem þar á sér stað með slíkum ágætum að rétt sé að útvíkka hugmyndina svo mjög sem raun ber vitni í þessu frumvarpi? Nei, það virðist mér ekki.
Stærð þjóðgarðsins, ef af verður, virðist vera áætluð um 30% eða 40% af landinu. Með því er gengið alla leið. Ekki er um neinn millileik að ræða eins og stundum er sagt í skákinni. Það á að gera allt miðhálendi Íslands að þjóðgarði í einu stóru skrefi og setja þannig svæðið allt í uppnám. Á ég þar við allt það sem varðar virkjanir og aðrar framkvæmdir; vegalagnir, línulagnir og vindmyllugarða sem verður þá að reisa niðri í byggð ef þetta er það sem koma skal. Fyrir utan það á að stofna enn eina stofnunina. Allt vald á að færa í hendur embættismanna með aðsetur á höfuðborgarsvæðinu, í þessum efnum sem öðrum.
Herra forseti. Afstaða stjórnarflokkanna til málsins er afskaplega misjöfn þrátt fyrir að það sé eins og að gera tilraun til að lesa í dulmál að skilja sumar ræður hv. þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem hafa tjáð sig um málið hér. Ekki er of djúpt í árinni tekið að segja að mjög svo skiptar skoðanir séu um málið innan þessara þingflokka. Þó er ekki víst, herra forseti, að það dugi til. Umhverfisfólkið, sem margt hvert telur sig reyndar eiga einkarétt á þessum málum og á margt hvert lögheimili í Vinstri grænum, treystir á suma félaga sína sem hafa aðsetur í öðrum flokkum og að þannig náist tilskilinn fjöldi til að skola þessu máli hér í gegn. Gallinn við málflutning stjórnarliðanna sem fyrr voru nefndir er að sjálfsögðu sá augljósi annmarki að þeir skrifuðu undir þetta í stjórnarsáttmálanum þegar mikið lá við að mynda stjórn með víðtæka skírskotun, eins og einhver orðaði það, og þá líklega út í öll horn stjórnmálanna. Hvernig þeim gengur svo að komast hjá því að bera ábyrgð á þessu máli og telja fólki trú um það verður að koma í ljós og þá einnig hvort fólk taki þær skýringar trúanlegar. Fjölmargir Sjálfstæðismenn eru með miklar innantökur vegna málsins. Hvernig þeim gengur að afbera þær verður að koma í ljós á vormánuðum. Afstaða einhverra Framsóknarmanna er kunnugleg. Þeir vilja allra helst hvorki vera með málinu né á móti því og tala út og suður svo allra helst sé unnt að skilja þá sem fylgjandi en líka andvíga málinu. Í öðru orðinu tala Framsóknarmenn um að efla sveitarstjórnarstigið með því að stækka sveitarfélögin, neyða stóran hluta af sveitarfélögum landsins til að sameinast, allt í þeim tilgangi að efla þau, en í hinu orðinu taka þeir af sveitarfélögunum hluta af skipulagsvaldi þeirra með þessu frumvarpi sem kemur frá félögum þeirra í ríkisstjórninni. Þeir taka þannig forræði og skipulagsvald af sveitarfélögunum í öðru orðinu en segjast vera að efla þau í hinu. Ég tel reyndar að í báðum málum sé verið að veikja sveitarstjórnarstigið. Í báðum þessum málum er verið að ganga á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga.
Nei, herra forseti, það verður ekki bæði sleppt og haldið. En hvað hangir nákvæmlega á spýtunni? Ég held hreinlega að hér ráði helst ferðinni að fylgjendur málsins hafi mikla þörf fyrir að geta skreytt sig með því. Hér yrði um stærsta þjóðgarð í Evrópu að ræða og sá merkimiði er öllu öðru yfirsterkari. Því á að keyra málið í gegn á lokametrum ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir miklar efasemdir fjölmargra stjórnarliða, eins og berlega hefur komið í ljós hér í dag, og mikla andstöðu sveitarfélaganna sem kvarta undan samráðsleysi og benda á augljósa vankanta í undirbúningi málsins, allra helst þá að ekki sé fyrirséð að unnt verði að reka garðinn svo vel að sómi verði að, það sé fjarri því komin nægileg reynsla af rekstri stærsta þjóðgarðsins sem margir telja að hafi gengið fremur skrykkjótt, og reyndar margt fleira sem ég kem að síðar í þessari ræðu. Þannig eigi að fara af stað með þetta risastóra mál, að gera þriðjung eða meiri hluta landsins að þjóðgarði, án þess að við höfum nokkra burði eða reynslu til að standa vel að málinu. Það á að þrykkja málinu hér í gegn, vitandi það að við höfum ekki burði til að standa vel að því. Við höfum ekki næga reynslu. Við höfum ekki unnið að þessum málum nógu lengi til að gera þetta vel. Samt á að taka þetta í gegn. Hvað gengur mönnum til? Það á bara að fara af stað með opin augu, þótt menn viti að málið mun klúðrast. Það verða gerð fjölmörg mistök og ég efast um að það sé náttúruvernd á þessu svæði til góða. Ég efast um það. Ég tel að taka hefði átt minni skref, vernda og friðlýsa svæðið smám saman, afla meiri reynslu af þeim þjóðgarði og þjóðgörðum sem við höfum nú, áður en við stígum svo stórt skref.
Herra forseti. Einnig er verið að færa töluverðan hluta af skipulagsvaldi sveitarfélaga yfir til stjórnunar- og verndaráætlana sem binda hendur þeirra hvað varðar uppbyggingu innviða og vernd og nýtingu á þessu ógnarstóra landsvæði og ganga þannig framar skipulagsáætlunum sveitarfélaga. Hver verður t.d. aðkoma sveitarfélaganna og landeiganda að atvinnumálum á svæðinu? Svo er helst að skilja að atvinnurekendur þurfi atvinnuleyfi frá stjórn þjóðgarðsins til að starfa á svæðinu og það án tillits til þess um hvers konar atvinnustarfsemi er að ræða eða hverjar skoðanir heimafólks eru á þessu. Þarna eru fjölmargir sem reka starfsemi eða hafa erindi, eins og t.d. bændur, ferðaþjónustuaðilar, ferðafélög, gönguklúbbar og alls kyns áhugafélög og -fólk.
Hvernig hefur samráðið verið í þessu máli, herra forseti? Mikið hefur verið rætt um að það sé mikið samráð. Í raun og veru hefur einungis verið um kynningu að ræða. Ekki hefur verið tekið neitt mið af ábendingum sveitarfélaganna, en þær hafa verið fjölmargar. Flest eru andvíg stofnun þjóðgarðsins að svo stöddu. Hvernig hefur t.d. verið tekið á ábendingum þeirra sumra um að þetta fari í umhverfismat? Hvernig hefur verið tekið á því áður en þessi stofnun verður að veruleika? Hefur því verið ansað? Nei, herra forseti, skollaeyrum er skellt við slíkum uppástungum, sem margir hefðu nú orðið hissa á ef um aðra framkvæmd væri að ræða. Nei, tilgangurinn helgar meðalið.
Hvernig verður framvinda þessa máls? Þegar svæðið fer undir stjórn fjarlægra stjórnvalda á Reykjavíkursvæðinu, mun það draga úr framlagi sjálfboðaliða sem unnið hafa á þessum slóðum í áratugi og jafnvel lengur og nýtt svæðið? Munu menn verða fúsir til að koma þangað og leggja fram vinnu eða fjármagn til að græða upp land eða bæta svæðið á einhvern hátt? Reynslan hefur því miður verið þannig að sjálfboðaliðar forðast slíkt og ríkið mun þurfa að leggja í þetta stórfé eins og dæmin sanna. Allt sem ríkið gerir er margfalt dýrara en þegar frjáls félagasamtök eða áhugamenn eða landeigendur ráðast í slíkar framkvæmdir, eins og dæmi eru um víða á svæðinu. Það á að stofnanavæða þetta, það á að ríkisvæða þetta, aðgangsstýra þessu. Menn þurfa líklega leyfi eða stimpla til að komast um svæðið og síðast en ekki síst verða allar framkvæmdir þarna, hvort sem það heita vegir eða línur eða virkjanir eða vindmyllur eða hvað sem menn hafa hugsað sér að nýta þetta land undir sem telur meira en þriðjung Íslands, allt háð leyfum og því að fara í gegnum kerfi sem verður myndað um þennan þjóðgarð.
Hætt er við að aðgengi almennings að landsvæðum innan þjóðgarðsins verði takmarkað með gjaldtöku og aukinni stýringu. Varðandi nytjarétt heimamanna, beitarstýringu og veiði, er ekki nægilegt að segja að þeim réttindum verði viðhaldið og að þau séu nú þegar tryggð í þjóðlendum. Ekki er að furða þó að þessir aðilar séu mjög uggandi um hag sinn enda er verið að kollvarpa allri fyrri skipan mála á hálendi Íslands. Og hver verður kostnaðurinn, herra forseti? Stofnun og rekstur þjóðgarðs af þessari stærðargráðu kallar á mikið fjármagn ef vel á að standa að málum varðandi uppbyggingu á ýmiss konar aðstöðu og starfsemi. Má þar nefna vegi, merkingar, fráveitumál, viðhald eigna og margt fleira. Er fjármagnið fyrir hendi? Hefur fjármagnið verið nægilegt í þeim þjóðgörðum sem við rekum nú þegar? Ef þjóðgarður á að geta staðið undir væntingum um atvinnu og stuðning við búsetu, eins og segir, þarf verkefni af þessari stærðargráðu að fylgja mikið fjármagn. Það þarf að koma verulegt aukið fjármagn til þessa verkefnis til að svara væntingum um aukið aðgengi og raunhæfan möguleika til útivistar og að sem flestir geti notið þjóðgarðsins, en samfara því er veruleg styrking öryggismála á svæðinu og vöktun, sérstaklega ef laða á ferðamenn að svæðinu og hugsanlega, og væntanlega, í stórauknum mæli.
Herra forseti. Auðvitað verður erfiðara en áður að ráðast í nýjar virkjanir á svæðinu eftir að það er orðið þjóðgarður. Auðvitað verður það. Þar vil ég benda á að þetta er þriðjungur landsins, þetta er þriðjungur af Íslandi. Nei, herra forseti, þetta er of stórt skref að stíga í einu eins og nú háttar.