Hálendisþjóðgarður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég er reyndar sannfærð um að í hálendisþjóðgarði felist mikil tækifæri, en ég hygg að við finnum það öll að það er ákveðin hræðsla við hvað þetta breytta fyrirkomulag þýðir. Það er hræðsla við hvernig okkur tekst að samrýma það að vernda og nýta og njóta. Ég sé að nefndinni var jafnframt falið að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslu um skiptingu landsvæða innan hans í verndarflokka. Ég sé líka að frumvarpið afmarkar svæði við svonefnda miðhálendislínu eins og hún var afmörkuð í landsskipulagsstefnu á sínum tíma. Ég velti fyrir mér hvaða umræða hafi átt sér stað í starfshópnum um að fylgja þessari línu og hvort umræðan hafi að einhverju leyti verið um hvort ástæða væri til að minnka svæðið til að ná mögulega meiri sátt um hugmyndina. Ég hef heyrt því fleygt í umræðunni að fólk hræðist líka umfangið, þannig að ég hef velt því fyrir mér hvort það sé einhver leið til að ná breiðari og meiri sátt um málið að minnka umfangið eitthvað og horfa á þetta í einhverjum áföngum.