151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[22:59]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð. Við höfum rætt það meira og minna í allan dag og höfum tekið á mörgu. Mig langaði fyrst og fremst að ræða þetta plagg í stóra samhenginu, þ.e. í tengslum við aðrar stefnumótandi áætlanir á vegum stjórnvalda sem hafa flestallar verið samþykktar hér í þingsal. Hálendisþjóðgarður kallast á við stefnumótandi áætlanir stjórnvalda. Þá er ég að tala um rammaáætlun, samgönguáætlun og langtímaorkustefnu til 2050, sem er reyndar stefna á vegum ráðuneytis sem þverfaglegur hópur vann að og hún er ekki komin hingað inn í þingsal. Við erum svo enn þá að bíða eftir því að sjá hvernig við ætlum að standa að vindorku. Síðan er það þingsályktunartillaga um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, en Alþingi er ráðlagt að vinna með hana í tengslum við 39. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, þ.e. að við uppbyggingu flutningskerfis raforku, þar með talið við gerð kerfisáætlunar, verði stefna sú sem fram kemur í þingsályktun þessari höfð að leiðarljósi. Sú stefna sem við samþykktum fyrir ári eða tveimur kallast á við hálendisþjóðgarðinn.

Það er helst tvennt sem mig langar að ræða. Annars vegar eru það hálendisvegir og stofnvegir á hálendinu og hvernig þeir kallast á við frumvarp um hálendisþjóðgarð. Þá erum við að tala um Sprengisand, Kjalveg, Fjallabak syðra og Fjallabak nyrðra og hvernig það vinnst allt saman. Hins vegar er það orkuframleiðsla og orkuflutningar frá virkjununum á hálendinu. Nú hefur töluvert verið rætt um jaðarsvæði og staðsetningar á virkjunum. Kannski hefur verið minni umræða um flutningskerfi raforku og hvernig eigi að leysa þau mál. Þar má benda á að við erum almennt að tala um byggðarlögin hringinn í kringum landið. Það hefur verið grunnplaggið. Talað hefur verið um hina svokölluðu áttu í þessu samhengi, sem væri þá um Sprengisand, og hvernig við tengjum saman orkusvæðin á Þjórsársvæðinu og í Soginu, þar sem um helmingur af allri orku í landinu er framleiddur, við norðursvæðið frá Blöndu í Fljótsdalsstöð þar sem annað eins er framleitt af orku. Þessi svæði skiptast um það bil til helminga. Þar fyrir utan eru framleidd eitthvað meira en 1.000 MW á hverju svæði. Þetta þarf að tengja saman og það er hluti af þingsályktunartillögunni sem ég talaði um áðan. Það snýr að orkuöryggi og hvernig við ætlum að fara með þau mál.

Þegar við tökum 30% af landinu, allt miðhálendið, undir hálendisþjóðgarð þurfum við að ákveða hvernig við ætlum að fara með það í þessu samhengi. Mikil andstaða hefur verið við línur í lofti yfir hálendið. Í kerfisáætlun og í vinnslu við fyrri kerfisáætlanir hjá Landsneti hafa m.a. komið fram hugmyndir um AC-strengi, kannski 50 km strengi. En það er ekki talin ásættanleg lausn í hálendisþjóðgarði þannig að nú er talað um DC-strengi yfir hálendið sem valkost. Það gæti kostað um 18–20 milljarða og er gríðarlega mikil framkvæmd. Ekki hefur verið fullklárað í tengslum við þjóðgarðinn hvernig tryggja eigi þessa raforkuflutninga. Fjórða iðnbyltingin er á næsta leyti og talað er um að fjarskipti og orka séu grunnurinn að henni. Við erum að horfa inn í framtíðina og í orkuskiptin. Þessi orkuskipti eru stórt verkefni sem mikilvægt er að leysa, eins og við sjáum fyrir hér innan lands, en það eru 1.000 MW. Þetta er hluti af þeirri sýn. Síðan er það gríðarlega mikilvægt fyrir orkuvinnslu almennt, jafnvel til útflutnings á rafeldsneyti, á vetni og öðrum hlutum í framtíðinni, að við náum að nýta raforkukerfi okkar í heild sinni sem best. Í vinnu við orkustefnuna sem lauk í haust og hefur verið kynnt, en ég var í þeim þverpólitíska hópi sem kom að henni, kemur fram hversu vannýtt raforkukerfið er. Úr því þurfum við að bæta með betri orkuflutningum til að nýta raforkuna betur í öllu landinu. Það er gríðarlega mikilvægt að mínu viti að það komi meira inn í þá vinnu sem tengist hálendisþjóðgarði. Mér finnst því ekki hafa verið svarað með fullnægjandi hætti hvernig eigi að fara með þetta.

Annað mál sem ég minntist á áðan varðar vindorku. Í þessu hálendisþjóðgarðsfrumvarpi er því illa svarað hvernig við ætlum að takast á við þau mál. Manni sýnist á þeim myndum sem teiknaðar hafa verið upp, að með þessum garði, á jaðarsvæðum í kringum hann og áhrifasvæðum þeirra, sé að mestu búið að útiloka mögulega nýtingu á vindorku í landinu. Það er rétt norðausturhornið og kannski einhver svæði vestast á landinu sem myndu geta nýst undir það. En vindorka er sá þáttur sem gæti hjálpað okkur mikið í að styrkja raforkukerfið og nýtingu þess og hún gæti skapað vinnu og tekjur fyrir samfélagið. Hún er kannski eitt það mest spennandi í tengslum við raforkukerfið og hvaða möguleika við sjáum þar á næstu misserum. Þetta er einn þáttur sem þarf klárlega að fara enn betur yfir.

Það hefur líka mikið verið rætt í dag um skipulagsvald sveitarfélaga og aðkomu þeirra að málinu. Aðkoma sveitarfélaganna að þessum svæðum þarf náttúrlega að vera skýr varðandi landnytjar og annað og hvernig á að stjórna því. Þetta er eitt þeirra stóru atriða sem valda ákveðnum vandamálum og óvissu í tengslum við málið. Varðandi almannaréttinn má ekki hefta för þeirra um svæðin sem hafa nýtt þau áður.

Það er því af mörgu að taka í þessu máli. Að mínu viti á eftir að klára töluvert mikið. Mikil vinna er eftir við að ná utan um þau gríðarlega stóru og mikilvægu verkefni sem ég hef talið hér upp og heildarhagsmuni í málinu. Að mínu viti er því töluvert langt í að ná einhverri sátt um málið. Ég sé ekki fram á að geta stutt málið eins og það er lagt fram á meðan öll þessi óvissa ríkir um alla þá þætti sem ég hef verið að hlaupa á hér og í samhengi við allar þær stefnumótandi áætlanir sem ég minntist á áðan í þessu stærra samhengi. Gríðarleg vinna er eftir og ég sé ekki fram á að tímaramminn sé nægur til að klára málið á þessum þingvetri. Það þarf a.m.k. að vinna æðivel í mörgum stórum málum og samþætta allar þær stóru áætlanir sem ég hef minnst á hér.

Það er líka rétt að minnast á flokkun IUCN, alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna, þar sem allur garðurinn er settur í flokk II. Ef ég man rétt er svipað orðalag notað í 47. gr. náttúruverndarlaga. Ég held að þetta allt verði að skoða í meira samhengi og líka möguleikana á því að hægt sé að vera með mismunandi flokkanir fyrir einstök svæði garðsins, ef menn ætla að fara með þetta alla leið. Það er því mikil vinna eftir. Gangi mönnum vel í umhverfis- og samgöngunefnd að takast á við verkefnið. Við þurfum að klára æðimargt til að skýra málið ef maður á að sjá fram á að geta stutt það.