151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[23:50]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra talaði mikið um samráð en sagði okkur um leið að sumu yrði ekki hægt að mæta fyrr en búið væri að koma stjórn þjóðgarðsins á og stofnuninni á fót, og það gæti tekið tvö til þrjú ár. Hæstv. ráðherra sagði líka að hlustað hefði verið á sjónarmið og þeim mætt. Ekki var það að heyra á hv. þingmönnum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í umræðunni hér í dag. Ég heyrði ekki betur en að hæstv. ráðherra væri mest í mun að sætta sjónarmið og gagnrýni af jaðrinum, ekki hvað síst frá fyrrverandi hv. þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, því að hæstv. ráðherra kom í engu til móts við athugasemdir hv. þingmanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.

Getur hæstv. ráðherra fullvissað okkur um að ekki verði um frekari virkjunarframkvæmdir að ræða innan þjóðgarðsins? Ég spyr hæstv. ráðherra líka af því að hann talaði um að ekki stæði til að loka hálendinu: Verður för fólks um þjóðgarðinn ekki að neinu leyti heft frá því sem nú er? Loks spyr ég hæstv. ráðherra: Hefur hæstv. ráðherra stuðning í ríkisstjórninni við þetta mál því að hæstv. ráðherra talaði mikið um rangfærslur? Hvað með þær ræður sem hv. þingmenn ríkisstjórnarflokkanna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, héldu hér í dag? Voru það allt rangfærslur? Hefur hæstv. umhverfisráðherra stuðning ríkisstjórnarinnar allrar við þetta frumvarp?