151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[23:52]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hv. þingmaður spyr mig í fyrsta lagi hvort ráðherra hafi stuðning í ríkisstjórninni. Þetta frumvarp er stjórnarfrumvarp, það fór í gegnum ríkisstjórn til þingflokka og þar inn til þingsins. Það voru fyrirvarar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna eins og við öll vitum og þeir verða teknir til umræðu í þingnefndinni. Verður för fólks um þetta svæði skert? Ég bendi á 18. gr. frumvarpsins sem fjallar um dvöl, umgengni og umferð í hálendisþjóðgarði en í 1. mgr. segir að almenningi sé heimil för um hálendisþjóðgarð og dvöl þar í lögmætum tilgangi. Síðan eru auðvitað reglur um það hvernig þeirri dvöl og þeirri för er háttað, rétt eins og það eru umferðarreglur þegar við keyrum um vegina sem hér hafa verið lagðir út um allt land. Hvað er eðlilegra en að það séu reglur um slíkt rétt eins og gilda á þjóðvegum landsins? Ég skil ekki alveg hver munurinn er.

Hv. þingmaður spyr líka hvort það verði fleiri virkjanir. Ég bendi á 23. gr. frumvarpsins sem fjallar um orkunýtingu. Þar er farið mjög skilmerkilega yfir það með hvaða hætti tekið er utan um samspil orkunýtingar og þjóðgarðsins og tilgreint sérstaklega að heimilt verði að ráðast í virkjanir á svæðum sem lenda í orkunýtingarflokki þriðja áfanga og að teknar verði ákvarðanir um það sem er í biðflokki á vettvangi rammaáætlunar en litið til ákveðinna þátta sérstaklega, hvort um sé að ræða raskað svæði eða annað. Það er því erfitt að svara því hvort það verða fleiri virkjanir eða ekki. Það er mál sem hlýtur að koma til kasta verkefnisstjórnar rammaáætlunar og síðan þingsins í framhaldi af því.