Hálendisþjóðgarður.
Forseti. Ég tel að allir sem hlýddu á geti túlkað lokin á svari hæstv. ráðherra sem svo að hann geri ekki ráð fyrir frekari orkunýtingu, frekari framleiðslu grænnar endurnýjanlegrar orku, innan marka þessa þjóðgarðar sem hann hyggst stofna. En hæstv. ráðherra svaraði ekki þeirri spurningu hvort för yrði að einhverju leyti heft umfram það sem nú er. Ráðherrann benti á að það giltu ákveðnar reglur um för og dvöl fólks eins og umferðarreglur. Það liggur fyrir nú þegar, herra forseti. Ég spyr: Hverju bætir frumvarp hæstv. ráðherra við hvað varðar för fólks um landið og dvöl þar umfram það sem þegar er í lögum? Ég ítreka líka spurningu mína um stuðning ríkisstjórnarinnar. Hæstv. ráðherra sagði að þetta væri ríkisstjórnarmál, sem er vissulega rétt, en ráðherrann hefur eflaust fylgst með umræðunni hér í dag og séð að, eftir því sem ég kemst næst a.m.k., ekki einn einasti stjórnarliði úr þingflokkum Framsóknarflokks eða Sjálfstæðisflokks var tilbúinn til að lýsa afdráttarlaust yfir stuðningi við frumvarp ríkisstjórnarinnar og hæstv. ráðherra. Því ítreka ég spurninguna: Telur hæstv. ráðherra sig hafa almennan stuðning við þetta mál í ríkisstjórnarflokkunum?
Svo að ég endurtaki þetta í lokin, herra forseti: Mun engin breyting verða á þeim möguleikum sem fólk hefur á að ferðast um landið með samþykkt (Forseti hringir.) þessa frumvarps? Hefur hæstv. ráðherra stuðning þingmanna stjórnarflokkanna við þetta mál?