151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Hálendisþjóðgarður.

369. mál
[23:56]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig ég á að svara þessum tveimur spurningum nánar en ég hef þegar gert. Þetta er stjórnarfrumvarp. Það fór í gegnum ríkisstjórn til þingflokka og er komið inn til þingsins. Ég get ekki fullyrt um það hvort einstaka þingmenn sjái sér fært að styðja málið eins og það er núna eða hvernig það verður þegar það er búið í þinglegri meðferð. Það held ég að verði bara að koma í ljós. En það er alveg ljóst að þetta mál er í stjórnarsáttmála og það er stuðningur við það í ríkisstjórninni.

Hv. þingmaður talar um för fólks um þetta svæði en 18. gr. í frumvarpinu tekur mjög vel utan um það, líkt og ég kom inn á í máli mínu áðan, að almenningi er heimil för um hálendisþjóðgarð og dvöl þar í lögmætum tilgangi. Þetta er 1. mgr. greinarinnar og þetta er leiðarljósið sem þjóðgarðurinn mun starfa eftir rétt eins og aðrir þjóðgarðar hafa starfað eftir sams konar leiðarljósum. Reynslan úr Vatnajökulsþjóðgarði sýnir okkur að þar hefur verið samráð sem unnið er í stjórnunar- og verndaráætlun, líkt og segir í 6. mgr. 18. gr., að í stjórnunar- og verndaráætlun sem unnin er heima í héraði af umdæmisráðunum skuli gerð sérstök grein fyrir öllum vegum þar sem heimilt er að aka innan þjóðgarðsins. Það er vissulega heimilt að takmarka umferð á einstökum slóðum og vegum í tiltekinn tíma ársins o.s.frv. Það stendur líka í þessari grein að akstur vélknúinna ökutækja utan vega í hálendisþjóðgarði sé bannaður, eitthvað sem er sjálfsagt að gera til að vernda náttúruna. Við erum samt sem áður ekki með þessu frumvarpi að fara að loka hálendinu fyrir umferð. Það væri náttúrlega afskaplega sérkennilegt að ætla að gera það þegar eitt af helstu markmiðum þjóðgarða er að auka aðgengi fólks að náttúrunni, til að njóta hennar,(Forseti hringir.) til að fræðast um hana og þar fram eftir götunum. En ég þakka kærlega fyrir umræðuna.