151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

störf þingsins.

[15:13]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gera Hallormsstaðaskóla að umtalsefni. Fyrst vil ég óska skólanum til hamingju með 90 ára starfsafmæli. Þá vil ég óska Hallormsstaðaskóla innilega til hamingju með að námsbraut skólans í sjálfbærni og sköpun hefur farið í gegnum allt staðfestingar- og viðurkenningarferli nýrra námsbrauta og búið er að auglýsa brautina í Stjórnartíðindum. Þetta er stór áfangi í sögu skólans og menntunar á Austurlandi en einnig tímamót í fjölbreytileika menntunar á Íslandi. Aðsókn að skólanum er góð og heimavist fullnýtt.

Sjálfbærni hefur verið rauði þráðurinn í sögu skólans alveg frá því 1930 og innan veggja skólans er mikil þekking á fullnýtingu hráefna og nýtingu auðlinda. Síðast þegar ég ræddi málefni skólans hér í ræðustól vorið 2017 var svo sannarlega ekki svona bjart yfir starfinu. Í 90 ára sögu skólans hefur hann reglulega þurfti að uppfæra og aðlaga námið í takt við samfélagsbreytingar og alltaf hefur það tekist þrátt fyrir tímabundna kreppu. Með seiglu og þrautseigju hefur stjórnendum og bakhjörlum skólans enn og aftur tekist að snúa vörn í sókn. Til hamingju með það.

Námið hefur alla tíð nýst vel sem undirbúningur fyrir ýmiss konar nám í skapandi greinum, matreiðslu og framreiðslu en einnig við að byggja upp almenna lífsleikni. Nám í sjálfbærni og sköpun á fjórða hæfniþrepi er mikilvæg viðbót á landsvísu á tímum þar sem við þurfum öll að tileinka okkur sjálfbærari lífsstíl. Skólinn er mikilvægur á landsvísu og laðar að fólk víða að til að stunda sérhæft nám. Skólinn hefur alla tíð laðað hæfileikaríkt fólk til búsetu á Austurlandi og ekki er síður mikilvægt að fólk sem þar hefur dvalið hefur góða sögu að segja þegar það haslar sér völl að námi loknu.