151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Svifryksmengun er alvarlegt vandamál og loftgæði, einkum í borgum, versna umtalsvert þegar svifryk er mikið. Í nýlegri meistararitgerð Brians Barrs við jarðvísindadeild Háskóla Íslands kemur fram að nagladekkjanotkun á höfuðborgarsvæðinu hefur langmest áhrif á magn svifryks á þessu svæði. Þá kemur fram á vef Vegagerðarinnar að notkun nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu er að aukast ef eitthvað er. Nú er hlutfallið þegar mest er 46% en var til að mynda 23% árið 2011.

Það er hins vegar mikilvægt að átta sig á því að aðstæður eru ekki alls staðar þær sömu og sömu lögmál gilda væntanlega ekki hvað þetta varðar í þéttbýli og dreifbýli eða á minni þéttbýlisstöðum. Hálkuvarnir á löngum vegarköflum þar sem er lítil umferð eru líklega ekki jafn fýsilegur kostur og hálkuvarnir á götum og vegum þar sem umferð er mikil og þung. Þar geta nagladekk líklega gert eitthvert gagn.

Loftgæði og umferðaröryggi eru hvort tveggja mikilvæg með tilliti til lýðheilsu. Að vetri til má samkvæmt skýrslunni ætla að nagladekk séu meginskýring svifryksmengunar á höfuðborgarsvæðinu. Umferðaröryggi þarf líka að skoða og meta hversu stór þáttur notkun nagladekkja er í að bæta öryggi vegfarenda og hvort aðrar leiðir séu jafn öruggar. Þar má nefna hálkuvarnir, gróf dekk, heilsársdekk og lægri umferðarhraða. Þá má einnig nefna mikilvægi almenningssamgangna en með aukinni notkun þeirra fækkar bílum á götum, umferðaröryggi eykst og mengun minnkar.

Ég hef lagt fram fyrirspurn til hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um þetta efni og hlakka til að sjá niðurstöður þeirra svara sem koma. Við þurfum með opnum hug að vega og meta saman þessa tvo mikilvægu þætti, þ.e. loftgæði og umferðaröryggi, og horfa til þess að um leið og við bætum loftgæði á höfuðborgarsvæðinu leitum við jafnframt leiða til að tryggja umferðaröryggi.