störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mér skilst að fyrir fjárlaganefnd liggi minnisblað frá hæstv. heilbrigðisráðherra þess efnis að það eigi að setja um 100 milljónir á árinu 2021 í fjármögnun nýrra laga um aukið aðgengi að sálfræðiþjónustu í samræmi við þau lög sem voru samþykkt hér einróma. Ég spyr einfaldlega, virðulegi forseti: Hvers konar sýndarmennska er þetta? Hvaða leikþátt er verið að setja upp? Það er ljóst að ríkisstjórnin ætlar núna ekki að setja það fjármagn sem þarf til í málið. Þetta er metnaðarleysi, þetta lýsir lítilli framtíðarsýn og er í engu samræmi við mjög ríkan og skýran vilja þingsins.
Á sama tíma heyrum við nístandi ákall úr samfélaginu um aukna áherslu á geðheilbrigði og líðan þjóðar. 30.092 einstaklingar skrifuðu undir áskorun Geðhjálpar um að geðheilbrigðismál verði sett í forgang í íslensku samfélagi. Forsvarsfólk stúdentahreyfinga hafa vakið athygli á gríðarlega alvarlegri stöðu hjá unga fólkinu okkar. Auk þess vitum við að heimsfaraldurinn hefur haft mjög neikvæðar afleiðingar á líðan fólks, einmanaleika og geðheilbrigði. Það hlýtur að vera hluti af viðspyrnu þjóðar að gera betur hér og taka stærri skref.
Ég óttast að þetta máttlausa skref sé aumur plástur á stórt, blæðandi sár því að þörfin eftir þessari þjónustu er æpandi í samfélaginu okkar. Þetta er nöturleg forgangsröðun ríkisstjórnar. Á sama tíma og hún setur milljarða í alls kyns gæluverkefni á þessum tímum setur hún ekki eyri í viðbótarfjármagn í þetta mikilvæga mál þar sem tekið er utan um fólk og líðan þess.
Viðreisn mun leggja til að 1,3 milljarðar verði settir í málið við afgreiðslu fjárlaga. Fjárveitingavaldið, Alþingi, hefur enn þá tækifæri til að gera betur og tryggja fjármagn í málið. Ég vil skora á þingmenn að leggja niður flokkslínur og sýna aftur samtakamátt og sigla málinu í höfn.