störf þingsins.
Herra forseti. Þrátt fyrir góðan árangur á Íslandi í sóttvörnum er staðan sú að það sem af er ári hafa 28 Íslendingar látist og 5.516 Íslendingar fengið Covid-19 og enn eiga einhverjir, vonandi þó sem fæstir, eftir að bætast í hópinn. Bólusetningar hefjast vonandi á næsta ári en áfram þurfum við að takast á við afleiðingar faraldursins sem birtast einmitt hjá einstaklingum sem eru að kljást við langtímaáhrif Covid-19. Þetta er eitthvað sem er fyrirsjáanlegt, herra forseti, og þetta er eitthvað sem við þurfum að búa heilbrigðiskerfi okkar undir.
Breska heilbrigðisþjónustan tilkynnti nýverið að settar hefðu verið 10 milljónir punda til að koma á fót 40 móttökum í Bretlandi fyrir sjúklinga sem eru að kljást við langtímaáhrif Covid-19. Þar munu starfa ólíkir sérfræðingar á heilbrigðissviði til að styðja við þessa einstaklinga, greina og meðhöndla þessi langtímaeinkenni. Í dag er ljóst að fleiri hundruð Íslendingar sem hafa fengið Covid-19 gæti þurft að stríða lengi við afleiðingar sjúkdómsins. Afleiðingar, herra forseti, lýsa sér m.a. í skemmdum á líffærum, síþreytu, heilaþoku og sársauka. Þannig gætu margir þessara einstaklinga búið við skert lífsgæði og gætu í einhverjum tilfellum endað í örorku, en afleiðingarnar virðast vera mjög einstaklingsbundnar og því mikilvægt að fylgjast vel með hverjum og einum.
Þetta er fyrirsjáanleg staða, herra forseti, og þó að við séum enn í miðjum storminum þá þurfum við að byrja að undirbúa okkur fyrir framhaldið. Við þurfum að halda vel utan um þá einstaklinga sem hafa fengið Covid-19 og búa til skýra ferla fyrir þá sem eru að kljást við langtímaafleiðingar sjúkdómsins. Þetta er eitthvað sem þarf að gerast núna, herra forseti, og ég skora á ríkisstjórnina að koma sem fyrst á fót úrræðum fyrir þá fjölmörgu Íslendinga sem eru að kljást við langtímaafleiðingar Covid-19 og sömuleiðis að tryggja þá fjármuni sem þarf til. Við megum ekki bregðast.