151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Á morgun ræðum við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Því er ætlað að bregðast við og mæta algjörlega fordæmalausum aðstæðum í efnahagslífi okkar. Við þekkjum öll hver sú staða er. 25.000 manns eru atvinnulausir eða á hlutabótaleið og það eru því miður vísbendingar um að þessar tölur muni fara hækkandi. Fyrirtæki og rekstraraðilar glíma við aðstæður sem eru án fordæma. Ferðaþjónustan öll hefur lamast, hótel, gististaðir og veitingahús um land allt. Það sama er að segja um þá sem starfa í menningu og listum á tímum harðra samkomutakmarkana.

Núna þarf að þora að beita ríkisvaldinu til að koma í veg fyrir að efnahagskreppan dýpki og lengist. Það þarf að taka stór skref við þessar aðstæður. Ríkisvaldið getur gert það og hefur burði til að gera það. Reyndar er það þannig að það mun reynast okkur öllum dýrkeyptara ef við beitum ríkiskassanum ekki núna heldur stöndum hjá.

Í mínum huga er alveg skýrt að það er aukin krafa á ríkisvaldið að setja fram kröftugar efnahagsaðgerðir því það er jú ríkisvaldið sem hefur sett fram harðar sóttvarnaaðgerðir. Þær eru nauðsynlegar en þeim þurfa að fylgja kröftugar efnahagsaðgerðir. Annars sjáum við einfaldlega það gerast sem við erum að horfa upp á í dag, að fólk gefst upp.

Við erum ekki sammála um það öll hér í þessum sal af hversu miklum þunga ríkið ætti að stíga inn. En við ættum hins vegar öll að vera sammála um það að núna er ekki tíminn fyrir ríkið að hækka gjöld á fyrirtæki sem róa lífróður. En það hefur þessi ríkisstjórn gert með hækkun áfengisgjalds í vikunni og að hægri flokkur skuli við þessar aðstæður hækka gjöld á fyrirtæki er óskiljanlegt. Stjórnvöld þurfa að vera læs á aðstæður og geta ekki leyft sér að bæta á útgjaldahlið fyrirtækja núna. Það er ekki skattapólitík sem hægri flokkur á að geta eða komast upp með að stunda.