félagsleg aðstoð og almannatryggingar .
Virðulegi forseti. Það er ástæða til að fagna þessu frumvarpi. Það sem felst í því er fyrst og fremst að lagt er til að við útreikning sérstakrar uppbótarframfærslu skuli telja til tekna lífeyrisþega 95% af fjárhæð tekjutryggingar samkvæmt lögum um almannatryggingar í stað allra fjárhæðanna, þ.e. 100% tekjutryggingar. Við erum því að minnka skerðingu fyrir utan þær eingreiðslur upp á 50.000 kr. sem eru skattfrjálsar. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli og ég fagna þeirri samstöðu sem hefur náðst um málið og gleðst yfir að verið sé að afgreiða það núna.