um fundarstjórn.
Herra forseti. Auðvitað má skilja það að erfitt sé fyrir forseta að leggja mat á ummæli þingmanna svo að segja samstundis. Það er skiljanlegt. Kannski er ekki rétt að tala um skert málfrelsi í því sambandi, það er kannski heldur djúpt í árinni tekið, en það getur verið óþægilegt fyrir þingmann ef hann má búast við aðfinnslum forseta þegar hann viðhefur slíkt orðalag sem hv. þm. Oddný G. Harðardóttir gerði hér áðan sem var tiltölulega meinlítið. Ég held að það sé langbest í þessu og færi forseta langbest að draga þessa aðfinnslu til baka.