um fundarstjórn.
Það gerir forseti ekki enda eru ákvarðanir sem forseti tekur af þessu tagi endanlegar og þeim verður ekki áfrýjað. Á það hefur iðulega verið bent. Þetta er vissulega vandasamt að nokkru leyti — ef hv. þingmaður dokar aðeins við af því að forseti er byrjaður að tjá sig um þetta á annað borð — okkur forsetum er vandi á höndum og það ræðum við í okkar herbúðum. Augljóst er að þægilegast væri lífið fyrir þann forseta sem gerði aldrei slíkar athugasemdir og léti bara allt óátalið en að mínu mati væri hann ekki sá forseti sem Alþingi þyrfti á að halda. Það er skylda forseta að sjá um að fundir fari fram með góðri reglu og gera athugasemdir ef hann telur orðfærið, orðanotkunina, ekki merkinguna, fara út fyrir þau mörk sem æskilegt er að menn haldi sig innan. Þá eru nokkur stig af því hvernig forseti bregst við. Það vægasta er að gera einhvers konar athugasemd þegar þingmaðurinn hefur lokið máli sínu. Það var gert í þessu tilviki. Það er meira inngrip að stöðva mál þingmannsins í miðri ræðu og gera þar athugasemdirnar en stundum er það gert. Stundum er þetta hérna látið nægja, (Forseti hringir.) að slá bara í bjölluna. Þetta er allt saman svona tiltölulega matskennt en það leysir forseta ekki undan þeirri skyldu að reyna að standa sig í stykkinu að þessu leyti þó hann viti að með því bakar hann sér ekkert endilega sérstakar vinsældir þingmanna. Þannig er það mál.