151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

um fundarstjórn.

[16:14]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta en ég vil undirstrika að hér var verið að ræða um mjög alvarlegt mál, fólk þarf að fara á sveitina, það þarf að segja sig til sveitar og það er skammarlegt. Þetta tvennt nefndi hv. þm. Oddný G. Harðardóttir í ræðu sinni. Til þess hafði hún að mínu mati ekki bara rétt heldur tel ég að það hafi verið skylda hennar sem þingmanns að segja hug sinn eins og hann var, um þetta. Þess vegna tel ég að hæstv. forseti hafi verið á villigötum þegar hann gerði athugasemd við þetta orðalag sem ég tel að hafi bæði lýst hug hv. þingmanns til þessarar stöðu og eins hafi það verið raunsönn lýsing á þeirri stöðu sem uppi er.