151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .

373. mál
[16:40]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svarið. Sannarlega hafa orðið breytingar á þessum tíma. Við höfum stofnað embætti héraðssaksóknara. Eins og við munum er það rakið í málinu að hugsanlega hefði átt að fela skattrannsóknarstjóra ákæruvald. Hér er sagt að frekari greiningu þurfi á því og áhrifum þess. Talað er um ófyrirséð vandamál og áskoranir en ekki rakið hverjar þær gætu verið. Eins og ég sagði áðan sé ég alveg kosti við slíka sameiningu en það breytir ekki áhrifunum af því að segja að ríkisskattstjóri sé sá embættismaður sem sé yfir skattrannsóknarstjóra. Hann á sannarlega að halda sjálfstæði sínu en miðað við hvernig fjármunirnir skiptast innan alls batterísins verður maður að hafa magatilfinningu fyrir því að sá hluti embættisins verði ekki látinn gjalda. Ég tel að enn þá sé gríðarleg þörf fyrir að rannsaka stór og umfangsmikil skattalagabrot, mér finnst það hafa sýnt sig undanfarin ár, og hún verður örugglega ekki minni á komandi árum. Það er bara spurning hvernig við getum fylgt því eftir. Jú, hugsanlega með því að fá yfirlit yfir málafjölda eða eitthvað slíkt frá embættinu þegar þetta hefur átt sér stað. Alla vega finnst mér Alþingi þurfa að fylgjast mjög vel með því að skattrannsóknarstjóri og skattrannsóknir af þessum toga, sem hafa verið í höndum þessara aðila, bíði aldrei lægri hlut.