151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

rannsókn og saksókn í skattalagabrotum .

373. mál
[16:44]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er með skipulegum hætti að veikja afar mikilvægar eftirlitsstofnanir í íslensku samfélagi. Í júní í fyrra voru samþykkt lög sem eru að mínu mati og margra annarra til þess fallin að veikja Fjármálaeftirlitið. Síðastliðið vor var Samkeppniseftirlitið veikt með lagasetningu og nú á að draga tennurnar úr skattrannsóknarstjóra. Ég vil fara örstutt yfir breytingar á Fjármálaeftirlitinu og Samkeppniseftirlitinu.

Í fyrravor stóðum við frammi fyrir þeirri spurningu hvort sjálfstæður seðlabanki með allt fjármálaeftirlitið yrði sterkari til að takast á við framtíðaráföll. Um það voru skiptar skoðanir innan þings sem utan. Ég tel að þetta hafi hvorki verið heillaskref fyrir Fjármálaeftirlitið né Seðlabankann. Heildaryfirsýn á kerfisáhættu og sterkt eftirlit með fjármálageiranum er nauðsynlegt en leiðin sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur lagði til og samþykkt var með lögum er að mínu mati líkleg til að veikja Fjármálaeftirlitið og skapa vantraust á Seðlabanka Íslands.

Einn af lærdómum fjármálahrunsins er mikilvægi þess að skýr skil séu á milli þeirra sem fara með eftirlit og þeirra sem hafa tæki til að tryggja fjármálastöðugleika. Sá lærdómur var hunsaður af stjórnarflokkunum með samþykkt laga um Seðlabankann. Í umsögnum sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd bárust um frumvarpið var varað við því að viðskiptaháttaeftirlit yrði fært undir sjálfstæðan seðlabanka. Allt er það vegna þess að seðlabankastjórar verða að geta beitt sér og tekið ákvarðanir sem gætu verið óvinsælar hjá stjórnmálamönnum, ákvarðanir sem varða hag almennings til langs tíma en þjóna ekki skammtímahagsmunum stjórnmálamanna eða flokka, til að mynda fyrir kosningar.

Áhyggjur af mikilli orðsporsáhættu fyrir seðlabanka sem sinnir viðskiptaháttaeftirliti eru ekki úr lausu lofti gripnar. Skemmst er að minnast þess hvernig fór þegar Seðlabankanum var falið gjaldeyriseftirlit og hvernig fór í máli Seðlabankans og fyrirtækisins Samherja. Traust á seðlabanka er afar mikilvægt í litlu landi. Í litlu landi getur verið stutt í að deilur verði persónulegar og það sem skaðar orðspor seðlabankastjóra skaðar einnig orðspor bankans. Rétt er að minna á að í öllum öðrum norrænum ríkjum er fjármálaeftirlit í sjálfstæðri stofnun en stjórnarflokkarnir fengu sitt fram með lögum sem ég tel augljóst að veiki Fjármálaeftirlitið og ég óttast að það hafi einmitt verið meiningin með sameiningunni.

Herra forseti. Á lokadögum síðasta þings keyrði ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur í gegn frumvarp sem veikir Samkeppniseftirlitið þegar nærtækara væri að styrkja það í því efnahagsástandi sem ríkir eftir Covid-19. Auk þess er íslenskt viðskiptalíf lítið og einangrað í samanburði við alþjóðleg markaðssvæði og gríðarlegt hagsmunamál fyrir neytendur að hér sé heilbrigt samkeppnisumhverfi. Hér er því enn mikilvægara að hafa virkt eftirlit með samkeppni en í stærri löndum. Með veiku eftirliti geta fyrirtæki nýtt sér aðstæður til að skapa einokunarstöðu sem vinnur gegn hag almennings. Breytingartillögur hv. efnahags- og viðskiptanefndar, sem minni hlutinn knúði fram, drógu lítillega úr skaðanum sem annars hefði orðið en eftir stendur að veltumörk tilkynningarskyldra samruna hækkuðu verulega þannig að stórir samrunar eru ekki tilkynningarskyldir. Einnig er fyrirtækjum ætlað að meta sjálf hvort skilyrði samkeppnislaga til samstarfs séu uppfyllt, svo að dæmi séu tekin um breytingar.

Stjórnarliðar tóku við samþykkt laganna ekkert tillit til þeirra breytinga á efnahagslífi og atvinnulífi sem hafa komið í kjölfar Covid-19. Í greinargerð frumvarpsins, sem varð að lögum í júní síðastliðnum, kemur fram að það sé samið m.a. til þess að taka tillit til þess að miklar breytingar hafi orðið á íslensku efnahagslífi frá því að samkeppnislögunum var síðast breytt árið 2011. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Mikill uppgangur hefur verið á síðustu árum á ákveðnum sviðum atvinnulífsins þar sem mikil samkeppni hefur leitt af sér töluvert aðhald fyrirtækja hvert með öðru og nokkurn fjölda samruna.“

Öllum má vera ljóst að miklar breytingar hafa orðið á íslensku efnahagslífi eftir Covid-19 og því hafa þessar forsendur fyrir frumvarpinu einfaldlega brugðist. En stjórnarliðar héldu sínu striki þrátt fyrir að við séum í dýpstu kreppu í 100 ár.

Samkeppniseftirlitinu er ætlað að sporna gegn blokkamyndun í viðskiptalífinu. Hættan á blokkamyndun er enn meiri í þeim aðstæðum sem nú hafa skapast eftir Covid-19. Það var því alls ekki rétta leiðin að nýta þetta erfiða umhverfi til að búa til kjöraðstæður fyrir ráðandi fyrirtæki á fákeppnismarkaði og mikilvægt að valda ekki auknu tjóni með því að búa til einokunarfyrirtæki á mörkuðunum. Slíkt gengur augljóslega gegn hag almennings.

Árið 2011 stóðum við í Samfylkingunni og Vinstri grænum, sem þá vorum í ríkisstjórn, að styrkingu samkeppnislaga til að skapa virka samkeppni. Þar lá til grundvallar skýr vilji til að gæta almannahagsmuna. Sjónarmiðið var einkum það að keppi fyrirtæki á markaði um viðskiptavini batni kjör almennings og atvinnulífið verði þróttmeira. Þannig skapist tekjur og skattar sem síðan auðveldi að reka betra velferðarkerfi. Virk samkeppni er á hinn bóginn ekki sjálfgefin og stórfyrirtæki á hinum litla íslenska markaði hafa mikla hagsmuni af því að draga úr henni og þá ekki síst að draga úr eftirliti með samkeppnisreglum. Við styrkingu samkeppnislaga 2011 mættum við mikilli andstöðu frá Sjálfstæðisflokknum, Samtökum atvinnulífsins og Viðskiptaráði. Sú sérhagsmunabarátta skilaði ekki árangri þar sem við og VG stóðum saman við að efla nauðsynlegt eftirlit og aðhald gagnvart viðskiptalífinu. Þessir sömu aðilar nýttu stöðu sína til að veikja Samkeppniseftirlitið, með stuðningi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að þessu sinni.

Aðgerðir stjórnvalda til að veikja Samkeppniseftirlitið eru ekki í samræmi við þróun samkeppnisreglna í Evrópu undanfarin ár. Þar hefur hugmyndafræðin byggst á því að styrkja lögin en ekki veikja þau eins og hér var gert. Nú á með því frumvarpi sem við ræðum í dag að veikja embætti skattrannsóknarstjóra. Það er að mínu mati algjörlega fráleit ráðstöfun en í góðu samræmi við aðrar aðgerðir hæstv. ríkisstjórnar sem leiða af veikara eftirliti með þeim sem sýsla með peninga og reka stærstu fyrirtækin. Nær væri að styrkja embætti skattrannsóknarstjóra líkt og margar skýrslur og greiningar hafa fjallað um og þingmál Samfylkingarinnar frá síðasta þingi gerir ráð fyrir. Í greinargerð með því þingmáli kemur m.a. fram að í meira en aldarfjórðung hefur reglulega verið vakin athygli á nauðsyn þess að uppræta augljósan tvíverknað í rannsókn á skattsvikum og efnahagsbrotum og útgáfu ákæra á því sviði, jafnt í þingmálum sem og mörgum skýrslum og greiningum. Fyrirkomulagið hér á landi er seinvirkt og kostnaðarsamt og hvorki hinu opinbera né meintum sakborningum í hag. Með löngum málsmeðferðartíma vex auk þess hætta á að réttarspjöll verði, sem leiðir til mildari dóma en ella eða jafnvel sýknu eins og dæmi eru um.

Eins og löggjöf er nú háttað er þeim brotum sem þykja alvarleg samkvæmt niðurstöðum rannsóknar skattrannsóknarstjóra vísað til héraðssaksóknara til opinberrar rannsóknar og venjulegar skattamálameðferðar. Samkvæmt upplýsingum frá skattrannsóknarstjóra er það svo að þrátt fyrir að málum frá embættinu sé samkvæmt orðanna hljóðan vísað til rannsóknar héraðssaksóknara sé almennt ekki um að ræða rannsókn málanna frá grunni frá því embætti heldur séu rannsóknirnar alla jafna reistar á þeirri rannsókn sem skattrannsóknarstjóri hefur framkvæmt og lýst er í skýrslu hans um viðkomandi mál. Til að auka skilvirkni ætti að veita skattrannsóknarstjóra ákæruvald í þeim málum sem embættið rannsakar en í september 2019 voru 140 óafgreidd mál frá skattrannsóknarstjóra hjá héraðssaksóknara.

Verkefnisstjórn um breytingar og umbætur á skattkerfinu frá 2016 kemst að þeirri niðurstöðu og leggur til að rannsóknarmál verði eingöngu til meðferðar hjá skattrannsóknarstjóra, sem fái ákæruvald. Sakamál vegna skattalagabrota krefjast sérþekkingar og sérhæfingar, bæði hvað varðar rannsóknir og saksókn. Það stuðlar að skilvirkni að einn og sami aðilinn annist hvort tveggja. Slík tilhögun er þekkt í öðrum löndum, þar á meðal í Þýskalandi. Þá eru ríki sem við viljum bera okkur saman við að reyna að samþætta annars vegar sérþekkingu á skattarétti og hins vegar skilvirkni ákærumeðferðar. Peningaþvætti tengist oft skattsvikum og skattalagabrot eru ein helstu frumbrot peningaþvættis. Rannsókn peningaþvættisbrota er samkvæmt lögum á hendi héraðssaksóknara. Vegna þess hve mjög peningaþvættisbrot tvinnast saman við frumbrot liggur hins vegar vel við að rannsaka peningaþvætti vegna skattsvika samhliða þeim skattalagabrotum sem um ræðir. Hefur þeirri skipan einmitt nýlega verið komið á í Svíþjóð. Í Panama-skjölunum voru Íslendingar fjölmennir og rannsókn málanna flókin og margþátta. Samherjaskjölin kalla á rannsókn á flóknum millifærslum og skoðun í minnst þremur löndum og svo höfum við ekki staðið okkur vel í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Það er augljóst, forseti, að efla þarf rannsóknir á skattalagabrotum og sjá til þess að þær verði skilvirkari. Það er fráleitt að mínu áliti að leggja af embætti skattrannsóknarstjóra með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Til að leysa úr því sem hæstv. ráðherra fór hér yfir áðan varðandi tvöfaldar refsingar er hægt að fara aðrar leiðir.

Við í hv. efnahags- og viðskiptanefnd munum auðvitað fara vel yfir þetta mál. Þar mun ég leggja áherslu á að þær hliðar sem ég hef nefnt verði skoðaðar vandlega.