utanríkisþjónusta Íslands.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti meiri hluta hv. utanríkismálanefndar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um utanríkisþjónustu Íslands. Þetta hefur verið kallað sendiherrafrumvarpið en lögin um utanríkisþjónustu Íslands eru nr. 39/1971.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Jóhannsdóttur og Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur frá utanríkisráðuneyti, Steinar Örn Steinarsson frá Félagi háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og Friðrik Jónsson, Þórð Ægi Óskarsson og Sólrúnu Svandal frá Hagsmunaráði starfsfólks utanríkisþjónustunnar.
Nefndinni bárust umsagnir frá Félagi háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, Hagsmunaráði starfsfólks utanríkisþjónustunnar og Stefáni Skjaldarsyni sendiherra.
Frumvarpið var áður lagt fram á 150. löggjafarþingi (716. mál) þar sem meiri hluti nefndarinnar lagði til efnisbreytingar (þskj. 1802) sem tekið hefur verið tillit til. Að auki hefur viðmiði um fjölda sendiherra sem skipaðir eru í utanríkisþjónustuna án staðarákvörðunar í 1. flokki verið breytt og verða þeir ekki fleiri en fjöldi sendiskrifstofa hverju sinni.
Meiri hlutinn fagnar því að tekið hafi verið tillit til þeirra tillagna sem meiri hluti nefndarinnar lagði til á síðasta löggjafarþingi. Fyrst ber að nefna að áskilnaður er nú gerður um að þeir sendiherrar sem skipaðir verði tímabundið án auglýsingar hafi háskólamenntun og reynslu í alþjóða- og utanríkismálum eða sértæka reynslu sem nýtist í embætti. Í öðru lagi er kveðið á um að heimilt verði að kalla sendiherra sem skipaðir eru tímabundið heim til annarra starfa innan skipunartímans. Í þriðja lagi er nú áskilið að skipuð verði hæfnisnefnd sem verður ráðherra til ráðgjafar um hæfni og almennt hæfi mögulegra sendiherraefna. Við meðferð málsins á 150. löggjafarþingi var ítarlega fjallað um störf svokallaðra hæfnisnefnda. Meiri hlutinn telur rétt að árétta að það er ekki hlutverk slíkrar nefndar að leggja fyrir ráðherra tillögu að vali heldur að fjalla hlutlægt um hæfni og almennt hæfi þeirra sem koma til greina út frá þeim hæfniskröfum sem lagðar eru til grundvallar og veita ráðherra ráðgjöf þar að lútandi. Við meðferð málsins kom fram að umboðsmaður Alþingis hafi til skoðunar starfsemi hæfnisnefnda, skipun þeirra og afmörkun hlutverks þeirra, sem rétt er að litið verði til.
Meiri hlutinn telur að auki jákvæða þá breytingu sem gerð hefur verið að fjöldi sendiherra sem skipaðir eru í utanríkisþjónustunni án staðarákvörðunar í 1. flokki verði ekki fleiri en fjöldi sendiskrifstofa hverju sinni. Heimildir ráðherra til skipunar sendiherra eru þar með skýrðar og takmarkaðar. Meiri hlutinn telur jafnframt til bóta að í greinargerð með frumvarpinu sé hugtakið „fagsendiherra“ ekki notað sem þýðing á enska heitinu „career diplomat“ sem á við um fulltrúa í utanríkisþjónustunni sem fær framgang í sendiherrastöðu. Í nefndaráliti meiri hlutans um frumvarpið á síðasta löggjafarþingi var þessi þýðing talin óheppileg og til þess fallin að valda misskilningi.
Þegar litið er til alls þessa telur meiri hlutinn að bragarbót hafi verið gerð með þeim breytingum sem orðið hafa á frumvarpinu frá framlagningu þess á síðasta löggjafarþingi. Meiri hlutinn telur eftir sem áður að tímabært sé að ráðast í heildarendurskoðun á lögum um utanríkisþjónustu Íslands, nr. 39/1971.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með lítils háttar breytingum sem liggja fyrir hér í nefndarálitinu.
Undir þetta nefndarálit skrifar sú sem hér stendur, Bryndís Haraldsdóttir, og hv. þm. Sigríður Á. Andersen, sem er formaður nefndarinnar, Njáll Trausti Friðbertsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Ari Trausti Guðmundsson.
Virðulegur forseti. Ég hef rennt yfir þetta nefndarálit sem er kannski ekki mjög langt. Frumvarpið er í mínum huga skýrt og við höfum gefið okkur töluverðan tíma til að fara yfir það hér í þinginu. Ég hygg að hv. utanríkismálanefnd sé búin að fara faglega og vel yfir málið, fá fjölda umsagna og taka það til umræðu. Í grunninn er þetta þannig að í dag eru engin takmörk fyrir því hvað hæstv. utanríkisráðherra getur skipað marga sendiherra, hverja eða með hvaða hætti. Frumvarpið gengur einfaldlega út á það að setja utan um það ákveðinn ramma þannig að sendiherrar almennt séu ekki umtalsvert fleiri en þær sendiskrifstofur sem ákveðið hefur verið að hafa af ráðherra með úrskurði forseta Íslands og svo samráði við utanríkismálanefnd Alþingis.
Ég lít svo á að hér sé um mjög gott mál að ræða og við segjum það reyndar í nefndarálitinu að við leggjum enn þá til að farið verði í heildarendurskoðun á þessum lögum sem eru komin aðeins til ára sinna.
Þess ber að geta að það kom töluvert til umræðu hjá okkur í nefndinni og margir af umsagnaraðilum bentu á það og ég ætla að leyfa mér að segja að það hafi ekki, svo ég muni, verið bent á önnur atriði í lögunum sem þarfnist nauðsynlega breytingar heldur hefur umræðan meira verið um að lögin séu komin til ára sinna og þar af leiðandi sé ástæða til að fara heildstætt yfir þau. Það er ágætlega tekið á því í greinargerð með frumvarpinu að það að fara í heildarendurskoðun á lögunum hafi verið eitt af þeim verkefnum sem tilgreind voru í skýrslu sem utanríkisráðherra gaf út um helstu úrbætur á sviði utanríkismála, skýrslu um umbætur, stefnumörkun og hagkvæmni utanríkisþjónustunnar. Við hvetjum til að haldið verði áfram með þá vinnu en leggjum til að þetta frumvarp verði samþykkt með lítils háttar breytingum sem lagðar eru til í nefndarálitinu.