utanríkisþjónusta Íslands.
Herra forseti. Það er til mikil mappa sem heitir Utanríkisþjónusta til framtíðar. Öll þessi sjónarmið og öll þessi rök eru auðvitað til þar. Ég er bara að láta það pirra mig, þegar við erum með frumvarp sem þessir hv. þingmenn telja greinilega til bóta, að þeir séu að búa til eitthvert minnihlutaálit sem segir mér ekki neitt, ekki hvaða skoðun þeir hafa, hvað þessir sendiherrar eigi að vera margir eða hver tíminn eigi að vera. Ég er engu nær um neitt sem 1. minni hluti er að segja. Þetta er eitthvert svona blaður, innihaldslaust blaður. Öll þessi gögn eru til nákvæmlega, heil mappa um utanríkisþjónustu framtíðar sem auðvitað er merkilegt plagg. Þegar maður horfir á svona minnihlutaálit hugsar maður: Til hvers er það? Er það bara til að koma að einhverjum óljósum hugmyndum? Þetta eru mikið til frasar; fjölþjóðlegt samstarf, fátækt og styrjaldir o.s.frv. Svo spyr maður: Af hverju eru þessir ágætu þingmenn ekki bara á meirihlutaálitinu og þá með fyrirvara og útskýra þessi atriði þegar málið er til umfjöllunar eins og núna?