151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

utanríkisþjónusta Íslands.

19. mál
[20:09]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það væri réttara fyrir hv. þingmann að líta aðeins í eigin barm og spyrja sjálfan sig af hverju hann er á ýmsum álitum og af hverju hann er yfir höfuð að greiða atkvæði með ríkisstjórninni þegar hann mætir í hvern þáttinn á fætur öðrum og talar gegn henni. (Gripið fram í: Hann spyr sig oft að því.) Já. Við fáum ekki svar við því hér og mér finnst í rauninni ekkert sérkennilegt að hv. þingmaður skilji ekki hvað við eigum við. Ég tek það í sjálfu sér ekki nærri mér. En í ritinu Utanríkisþjónusta til framtíðar er á nokkrum stöðum talað um í hvaða röð sé heppilegast að vinna hlutina til að gera utanríkisþjónustuna sem skilvirkasta og sveigjanlegasta. Ef hv. þingmaður myndi nú nenna að lesa skýrsluna sem hann er með fyrir framan sig en horfa ekki bara á kápuna myndi hann á nokkrum blaðsíðum, 39, 88, 89 og fleiri, sjá að það er rétt sem kom fram nánast í öllum umsögnum, bæði þegar málið kom fyrst fram og þegar málið kom aftur fram á þessu þingi, að aðilar telja að réttast sé að byrja á heildarskoðun laganna áður en farið er í einstaka þætti eins og þennan.