151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

utanríkisþjónusta Íslands.

19. mál
[20:26]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég ákvað að fara líka í ræðu. Ég flutti nefndarálitið áðan og ætlaði að freistast til að fara bara í andsvar við hv. þingmann en mér finnst eins og ég komi kannski sjónarmiðum enn betur á framfæri í ræðu. (GBS: Þá kem ég bara í andsvar.) Hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni er þá velkomið að koma upp í andsvar við mig.

Mig langar að byrja á að segja að á þeim tíma sem ég hef setið í í hv. utanríkismálanefnd hef ég að sjálfsögðu orðið vitni að því hversu fært og gott starfsfólk við höfum í utanríkisþjónustunni. Ástæðan fyrir því að ég tek það sérstaklega fram er sú að við höfum verið að glíma við ofboðslega krefjandi verkefni sem hafa komið upp með stuttum fyrirvara. Ég ætla að nefna sem dæmi setu okkar í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Það var ákvörðun sem var tekin með mjög stuttum fyrirvara. Þar sýndi ráðuneytið og starfsmenn þess hvers þeir eru megnugir, að ráðast í stórt verkefni á skömmum tíma og tryggja sjónarmið okkar og virknina. Við tókum ekki bara sæti í mannréttindaráðinu heldur tókum við raunverulega þátt í umræðunni, komum ýmsu mjög góðu til leiðar og notuðum það tækifæri sem okkur gafst þar. Það er líka hægt að tala um formennsku í Norðurslóðaráðinu og á fleiri stöðum. Það var kannski meira fyrirsjáanlegt og við höfðum meiri tíma til undirbúnings. Svo verð ég að nefna Covid og það ástand sem við horfðum upp á þegar heimurinn var nánast að lokast og Íslendingar, eins og okkar er von og vísa, út um hvippinn og hvappinn hér og þar á þessari jarðarkúlu. Starfsmenn utanríkisþjónustunnar fóru bara í það að sitja við símann á vöktum og bjarga Íslendingum heim og það var alveg stórkostlegt að verða vitni að því. Ég heyrði í fólki sem hafði þurft að nota þjónustu þeirra og fann svo virkilega fyrir því hvað það var gott að vera Íslendingur í slíkri stöðu. Ég ætlaði að byrja á því að segja það. Það sýnir auðvitað að við höfum í utanríkisþjónustunni, eins og í íslenskri stjórnsýslu, þetta svigrúm til að bregðast hratt við, eitthvað sem ég held að sé mjög mikilvægt og við sjáum kannski ekki alla jafna í stjórnsýslu. Stjórnsýsla er í eðli sínu og á að vera svolítið fastheldin og íhaldssöm. En þegar við erum svona í smærra lagi er ákveðinn kraftur og það er ákveðinn kostur að geta verið svolítið kvik í hreyfingum og breytt til.

Að því sögðu þá spurði hv. þm. Logi Einarsson, þegar hann mælti hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta utanríkismálanefndar, hvort byrjað hefði verið á öfugum enda. Ég vil bara segja nei við því. Það var klárlega ekki byrjað á öfugum enda Það var einmitt byrjað á því að horfa á utanríkisþjónustuna til framtíðar. Það var spurt: Hvar liggja hagsmunir okkar og hvernig ætlum við að stýra utanríkisþjónustunni þannig að hún horfi til hagsmunanna og hagsmunagæslunnar? Eins og hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson kom inn á erum við lítil þjóð og utanríkisþjónusta okkar er eðli málsins samkvæmt mjög lítil á alþjóðamælikvarða. Það þýðir að við þurfum að vera mjög hnitmiðuð og fókuseruð í því hvað við ætlum að fást við og einblína á. Ég tel að farið hafi verið hárrétt að í þeirri greiningarvinnu. Við getum svo tekist á um hvort fara hefði átt í heildarendurskoðun á lögunum. Ég bara ítreka það sem ég sagði áðan þegar ég flutti nefndarálitið, að við leggjum enn til að það verði gert. Ég tók reyndar líka fram að ég myndi ekki eftir að fólk hefði nefnt neitt sérstaklega sem nauðsynlegt væri að ráðast í breytingu á annað en að fara yfir lögin í heild sinni vegna þess að þau væru komin til ára sinna.

Hvort sem okkur líkar betur eða verr hefur skipun sendiherra í gegnum tíðina oft fengið töluverða umræðu og jafnvel gagnrýni úti í samfélaginu. Þar af leiðandi finnst mér full ástæða til að við höfum skýran ramma utan um það hvernig sendiherrar eru skipaðir. Sendiherrar eru meðal allra æðstu embættismanna okkar og það er gott. Þetta er ofboðslega mikilvægt starf. Það er mikilvægt að vera fulltrúi íslenska ríkisins á erlendum vettvangi og þar af leiðandi mikilvægt að við veljum til þess hæft fólk. Eins og ég sagði áðan held ég að við séum með einstaklega vel skipaða utanríkisþjónustu en það breytir ekki þeirri staðreynd að mikilvægt er að hafa skýran ramma í kringum það. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki þau rök að það skipti bara engu máli hversu marga sendiherra við höfum. Ég hefði kannski trúað þessu frá Samfylkingunni, sem hefur talað um að við ættum að fjölga opinberum störfum og það sé aðalmálið, en ég verð að viðurkenna að mér þykir það hálfkúnstugt hjá hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni að tala eins og það skipti ekki neinu máli. Ég get aftur á móti tekið heils hugar undir það sem kemur að einhverju leyti fram í nefndaráliti hans og í ræðunni hér áðan um að auðvitað þurfum við að vera vel mönnuð og fókuseruð og við þurfum að geta brugðist við í hvikulum heimi. Þar af leiðandi er ekkert fastsett hversu margir sendiherrarnir eiga að vera en það þurfa auðvitað að vera verkefni fyrir þá og sendiskrifstofur.

Við höfum svo sem sýnt það að undanförnu að við erum ekki bara með sendiherra í sendiráðum heldur líka með sendiherra sem sinna sérstökum verkefnum. Við höfum lagt áherslu á jafnrétti kynjanna og skipað sendiherra sem hefur það mál sérstaklega á sinni könnu. Ég sé fullt af slíkum tækifærum í framtíðinni. Við viljum einmitt vera kvik, geta brugðist við og sett af stað átaksverkefni í tengslum við til að mynda formennsku sem við sinnum eða eitthvað annað. Þar af leiðandi er gott að hafa það svigrúm. Þess vegna held ég að frumvarpið — eða ég held ekkert, ég bara veit það, ég er alveg sannfærð um að frumvarpið sem við erum hér með og þessar lagabreytingar sem við erum að gera séu til þess fallnar að gera þennan ramma utan um skipun sendiherra skýrari. Við erum til að mynda að leggja til að þessi störf, sem ég ítreka að eru meðal okkar æðstu embættisstarfa, séu auglýst. Það er engin krafa um það í dag, það stendur í lögunum að ekki þurfi að gera það og það hefur ekki verið gert. Samt hefur á síðustu árum færst í aukana að okkur finnst almennt að slíkar stöður eigi að vera auglýstar, að allir sem áhuga hafa eigi að hafa tök á að sækja um slíkt. Það er t.d. einn þáttur sem mér finnst mjög mikilvægur. Á sama tíma get ég ekki betur séð en að báðir minni hlutarnir taki líka undir að það kunni að vera ástæða fyrir því og mikilvægt að ráðherra hafi það svigrúm að skipa einhvern án auglýsingar og einhvern utan þjónustunnar. Ég held að hér séum við að koma með skýran og góðan ramma í kringum þetta. Við erum að auka gegnsæið, við erum að skýra kröfurnar, við erum að styrkja þennan ramma. Ég held að þetta auki enn frekar á fagmennskuna við skipun í embætti sendiherra og bara fagmennskuna í þjónustu okkar.

Ég verð reyndar að viðurkenna að þegar ég les álit 1. minni hluta finnst mér eins og sá minni hluti taki eiginlega meira og minna undir allt sem við höfum verið að gera í nefndinni og það sem fram kemur í þessu frumvarpi. Í rauninni er ekki bent á hvernig hlutirnir ættu að vera með einhverjum öðrum hætti. Ég ætla þó að hrósa hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir að vera bara opinn með það að honum finnist að ekki eigi að setja neinar skorður á fjölda sendiherra. Það er þá bara skýrt sjónarmið að þeir megi vera jafn margir og hverjum finnst á hvaða tíma sem er. Það er kannski ástæða til að geta þess líka að þó að sendiherrar séu í orði skipaðir til fimm ára, samkvæmt lögum um embættismenn, er það nú kannski ekki alveg á borði. Það er kannski meiri hefð fyrir því að háttsettir embættismenn séu æviráðnir. Það kann í sumum tilfellum að vera mjög gott. Þá er mikilvægt að muna að í þessu frumvarpi eru aðrar skipanir tímabundnar, sérstaklega í fimm ár, og ekki hægt að framlengja það eða skipa viðkomandi aftur. Ég held að þetta sé það sem við þurfum þegar ég er að reyna að lýsa því að þjónustan þurfi líka að vera kvik og það þurfi að vera hægt að skipa fólk til skemmri tíma í ákveðin verkefni.

Virðulegur forseti. Eins og ég hef sagt áður þá styð ég frumvarpið. Ég hef ekki heyrt rök sem mér finnst málsmetandi fyrir því að við ættum að fresta gildistöku og þaðan af síður að greiða ekki atkvæði með þessu frumvarpi.