utanríkisþjónusta Íslands.
Virðulegur forseti. Ég verð að byrja á því að nota tækifærið og þakka þeim hv. þingmönnum sem tóku þátt í þessari umræðu. Ég ætla að passa mig að endurtaka ekki ræðu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur. Ég tek undir allt sem þar kom fram. Mér fannst hv. þingmaður rekja rökin fyrir þessu prýðilega. Ég ætla hins vegar aðeins að fara yfir þá gagnrýni sem komið hefur fram.
Ég vek athygli á því að það hefur verið mikið kappsmál hjá stjórnarandstöðunni, ef undan er skilinn Flokkur fólksins, að koma þessu frumvarpi fyrir kattarnef. Frumvarpið var komið fram í vor en það þurfti að semja alveg sérstaklega um að klára það núna. Það var forgangsmál að drepa þetta mál. Ekki hefur farið fram mikil umræða, hvorki í þingsal né annars staðar, eða málefnaleg rök komið fram gegn frumvarpinu. Þó tek ég undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og hrósa hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni, ekki fyrir sjónarmið hans í málinu heldur finnst mér virðingarvert, ég tek það skýrt fram, að hv. þingmaður hefur skrifað greinar, eða í það minnsta eina grein um málið. Sömuleiðis hefur hann komið hér fram og lýst sjónarmiðum sínum. Ég verð að viðurkenna að ég er alveg á sama stað og hv. þm. Brynjar Níelsson, ég skil ekkert. Ég ætla ekki að endurtaka það sem hv. þm. Brynjar Níelsson sagði en það var mjög erfitt að átta sig á því hvað nákvæmlega 1. minni hluti var að gagnrýna.
Við skulum tala mannamál. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir vísaði til er engin umgjörð um þetta. Engin. Nú er sá sem hér stendur utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Og ef ég ákveð á eftir að gera hv. þm. Björn Leví Gunnarsson að sendiherra þá geri ég það bara. Ég get alveg gert á það eftir. Svo get ég farið fram í kaffistofu og raðað fólki í sendiherrastöður. Það er bara þannig. Hér er í fyrsta skipti komið fram frumvarp til að setja einhvern ramma utan um þessi mál. Ég hef ekki heyrt einn einasta mann, fyrir utan þá sem sendu inn umsagnir, og varla hv. þingmenn fyrir utan hv. þm. Gunnar Braga Sveinsson, sem hefur komið sjónarmiðum sínum á framfæri, mótmæla því að skynsamlegt væri að setja ramma utan um þessi mál. Ekki einn einasta mann. Og þegar hv. þingmenn segja: Heyrðu, við getum ekki gert það strax, við þurfum fyrst að fara heildarendurskoðun, þá tek ég alveg undir það síðarnefnda. Ég er ekki að útiloka að setja slíka vinnu af stað, alls ekki. En það er mikið framfaramál að setja ramma utan um þessa hluti eins og þeir eru núna.
Þegar menn segja að óþarfi sé að setja þak á fjölda sendiherra þá skulum við bara tala mannamál. Það eru 160 diplómatar, plús/mínus, og sendiherrar hafa farið upp í 42. Hér hafa þau sjónarmið heyrst að það sé bara allt í lagi að fjölga þeim, að fjórði, fimmti hver diplómat sé sendiherra. Nú er það þannig í framkvæmdinni að ef ráðherra skipar sendiherra er viðkomandi æviráðinn. Þannig er það. — Ég vil líka nota tækifærið og þakka fyrir hlý orð í garð starfsfólks utanríkisþjónustunnar. Ég tek undir það. Þetta er líka upplifun mín þannig að það kom mér ekki á óvart. Við erum með mjög öflugt og hæft fólk. — Við erum með 26 sendiskrifstofur og hér hefur jafnvel verið sagt að það sé allt í lagi að hafa 50 eða fleiri sendiherra. Maður setur ekki tvo sendiherra yfir hverja sendiskrifstofu. Maður gerir það ekki. Séu menn í einhverjum vafa um að þetta auki sveigjanleika eru þetta nákvæmlega rökin fyrir sveigjanleika. Ég hef jafnvel verið gagnrýndur í umsögnum fyrir hafa notað heimild í lögum til að setja sendifulltrúa yfir sendiskrifstofu. Viðkomandi einstaklingur er þá með titilinn sendiherra vegna þess að hann er það á meðan hann er yfir skrifstofunni. Svo kemur hann heim og verður þá aftur sendifulltrúi. Það er sveigjanleiki. Mér vitanlega hefur aldrei liðið jafn langur tími í sögu utanríkisþjónustunnar þar sem enginn sendiherra hefur verið skipaður. Þegar ég kom voru 40 af 160 diplómötum sendiherrar. Allir voru skipaðir af viðkomandi ráðherra og sumir höfðu fengið það tækifæri mjög ungir að verða sendiherrar það sem eftir er. Ég skal alveg viðurkenna það, virðulegur forseti, að ég er mjög ósammála því sjónarmiði að fólk eigi að vera æviráðið. Það getur vel verið að einhver einstaklingur sé alveg stórkostlegur á einhverju tímabili ævi sinnar en það getur ýmislegt komið upp. Þar fyrir utan held ég að það sé ekki góður hvati að viðkomandi viti að hann sé með stöðuna alla ævi. Það er eins ósveigjanlegt og getur orðið. Það er enginn vafi á því, virðulegi forseti, að þetta frumvarp, verði það að lögum, eykur sveigjanleika. Ekki veitir af.
Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór yfir ákveðin dæmi sem komið hafa upp á undanförnum árum og það eru alltaf að koma upp einhver dæmi. Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson fór yfir borgaraþjónustuverkefnið þar sem lunginn af starfsmönnum utanríkisþjónustunnar vann að því dag og nótt að koma Íslendingum heim. Eitt af því sem gerði það að verkum að það gekk svona vel var að búið var að fara í breytingar á utanríkisþjónustunni sem byggðar voru á tillögum sem hafa nokkurn veginn allar verið framkvæmdar, 151 tillaga og allar númeraðar. Það jók sveigjanleikann í starfsemi þjónustunnar. Af því að hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson talaði um að hann myndi ekki eftir annarri eins gagnrýni frá starfsfólki utanríkisþjónustunnar varð mér nú hugsað til þess að endalaus dæmi eru um að starfsfólk mótmæli breytingum. Ég þekki það vel sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra og er ekki einn um það. Ég man þá tíð þegar hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson, þá hæstv. utanríkisráðherra, gerði þá breytingu að sameina þróunarsamvinnu og utanríkisþjónustuna. Hv. þingmaður getur þá leiðrétt mig einhvern tímann, en ég man ekki eftir húrrahrópum og flugeldasýningum frá þeim starfsmönnum sem tjáðu sig um það. Ég held hins vegar að hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson hafi gert hárrétt þegar hann fór fram með það mál. Ég hef gert það áður og get gert það aftur að hrósa hv. þingmanni fyrir að hafa farið í þær breytingar. Þær voru skynsamlegar. Ég hef fylgt þeim breytingum eftir í setu minni á ráðherrastól. Ein af ástæðunum fyrir því að borgaraþjónustuverkefnið gekk svo vel er að blessunarlega hefur náðst að sameina þróunarsamvinnu utanríkisþjónustunnar. Fólkið sem hefur verið í þróunarsamvinnuverkefnum, sem flæðir nú í auknum mæli á milli, stóð sig afskaplega vel eins og aðrir í því verkefni þegar allar hendur þurfti á dekk. Þá var gott að hafa sveigjanleika.
Þegar ég var heilbrigðisráðherra sagði ég að heilbrigðisþjónustan væri ekki fyrir starfsfólkið, hún væri fyrir sjúklinga. Og utanríkisþjónustan er ekki fyrir starfsfólkið, hún er fyrir Íslendinga. Auðvitað er heilbrigðisþjónustan fyrir Íslendinga en líka aðra sem þurfa á þeirri þjónustu að halda. Þá þýðir það ekki að ég sé að tala starfsfólkið niður. Það er langur vegur frá. Það er mjög mikilvægt að hafa hæft starfsfólk á þessum sviðum sem öðrum, afskaplega mikilvægt. Það er mikilvægt að því líði vel og sé sátt. Þetta frumvarp hefur mjög lítil áhrif á núverandi sendiherra sem verða bara áfram sendiherrar. En þetta er mikið mál, sérstaklega fyrir yngra fólk sem er að hefja störf í utanríkisþjónustunni vegna þess að það eykur sveigjanleikann í utanríkisþjónustunni og eykur möguleika fólks á að fá að spreyta sig á starfsstöðvum og í sendiskrifstofum sem sendiherrar. Þegar þeir ráðherrar sem verða hér í framtíðinni taka ákvörðun um að gera sendifulltrúa að sendiherra eru þeir ekki að taka ákvarðanir sem hafa jafnvel áhrif í áratugi heldur eru þeir að gefa fólki tækifæri til að sinna þessum störfum. Nú er það bara þannig með mannfólkið að allir hafa sína hæfileika. Maður getur aldrei vitað hvernig viðkomandi reynist á hverjum stað nema þegar hann fær það tækifæri. Verið er að fjölga þeim tækifærum fyrir starfsfólk utanríkisþjónustunnar. Um það verður ekki deilt.
Ég ætla svo sem ekki að fara meira út í þetta. Ég vona að ég hafi svarað þeim sjónarmiðum sem hér hafa komið fram. Ef menn vilja frekari upplýsingar hefur ekki verið neitt hik á því að koma þeim áleiðis. Málið hefur svo sannarlega verið lengi til umfjöllunar í hv. utanríkismálanefnd og okkur er ekkert að vanbúnaði að samþykkja þetta framfaramál, því að þetta er svo sannarlega framfaramál sem mun styrkja utanríkisþjónustuna og auka sveigjanleika í þeirri mikilvægu þjónustu. Það sem mér finnst hins vegar gott, þó að ég sé ekki sammála þeim hv. þingmönnum sem gagnrýnt hafa frumvarpið, er að fólk hér metur þau störf sem unnin eru í utanríkisþjónustunni. Það er ekki sjálfgefið og hefur ekki alltaf verið. Það er mjög jákvætt. Því meira sem fólk tekur eftir því og vekur athygli á því, því betra vegna þess að utanríkisþjónustan er afskaplega mikilvæg. Það er bara svo, virðulegi forseti, að þó svo að við Íslendingar njótum almennt velvildar, ég held að ég megi fullyrða það, þá gætir enginn hagsmuna okkar nema við sjálf. Það er enginn sem gerir það. Við þurfum að vera á vettvangi og gæta hagsmuna okkar. Við þurfum líka að vera algerlega meðvituð um það að hér eins og annars staðar erum við fámenn og smá. Það þýðir ekki að við getum ekki sett okkur háleit markmið og fylgt þeim eftir. Það er ekki samasemmerki, hvorki þegar kemur að utanríkisþjónustunni né annarri þjónustu hins opinbera, milli stærðar og gæða. Við eigum alltaf að setja okkur markmið, helst mælanleg, um hvernig það á að ganga. Við Íslendingar þurfum að gera meira en margir aðrir, m.a. af því að við erum fámenn. Sveigjanleikinn sem frumvarpið býður upp á mun hjálpa okkur að gera það.
Svo ég hrósi nú aftur hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni þá hjálpaði það okkur að gæta hagsmuna okkar þegar hann fór, í mikilli andstöðu við ýmsa, ef ég man rétt, í það að sameina utanríkisþjónustuna og þróunarsamvinnuna, sem er afskaplega mikilvæg þjónusta. Fólkið sem verið hefur þar á undanförnum árum og áratugum býr yfir mikilli reynslu og þekkingu. Það er afskaplega gott að hún nýtist líka í hinni hefðbundnu utanríkisþjónustu. Það er upplifun mín að það að hafi gengið eftir. En betur má ef duga skal. Ég treysti því að hv. þingmenn muni standa þétt við bakið á þessu mikla framfaramáli. Þó svo að tillaga hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar verði ekki samþykkt — ég mun greiða atkvæði gegn henni, svo það sé alveg skýrt … (Gripið fram í.) — já, ég mun taka þátt í atkvæðagreiðslu og ég mun greiða atkvæði gegn henni — útilokar það ekki að við förum í heildarendurskoðun. Það er hins vegar mjög stórt verkefni og ekki sama hvernig í það er farið. Það væri æskilegast að góð sátt næðist um bæði verklag og niðurstöðu. Það er auðvitað ekki hægt að halda því fram að ekki sé hægt að breyta hlutum sem augljóslega þarf að breyta vegna þess að menn taki ekki allt saman í einu. Það eru rök sem ekki ganga upp. Hér hafa að mínu áliti ekki komið fram efnisleg eða málefnaleg rök sem hafa í það minnsta sannfært mig um að samþykkja ekki þetta mál. Þvert á móti hef ég alltaf haft sterka sannfæringu fyrir málinu og hef reyndar styrkst með hverjum deginum í trú minni á mikilvægi þess að þetta frumvarp verði að lögum.