fjárlög 2021.
Herra forseti. Í frumvarpi þessu er sett Íslandsmet í halla ríkissjóðs. Lán eru tekin á færibandi eins og enginn væri morgundagurinn. Hagræðing er engin, ekkert sparað á móti gríðarlegum halla. Óvænt áfall hefur vissulega dunið yfir og Miðflokkurinn hefur stutt nauðsynlegar aðgerðir en við skrifum aldrei undir að eldri borgarar séu annars flokks fólk. Virðingarleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart eldri borgurum er algjört. Það styttist í kosningar og það fer ekki fram hjá neinum að gæluverkefnum ríkisstjórnarinnar er laumað inn í veirupakkann til að kaupa sér atkvæði.
Miðflokkurinn hefur ávallt talað fyrir ráðdeild í ríkisfjármálum. Við erum eini flokkurinn sem er með fullfjármagnaðar breytingartillögur. Fullkomið ábyrgðarleysi ríkir hjá sumum hér í breytingartillögum og kæmust þeir til valda að loknum kosningum þá er þess sannarlega þörf að biðja guð að blessa þjóðina.