151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[13:15]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þessi fjárlög sem við greiðum atkvæði um hér eru mörkuð af heimsfaraldri. Við sjáum halla sem ekki hefur áður sést en við skulum láta það verða okkur til áminningar um alla framtíð, til áminningar um það að við gátum eingöngu tekið með myndarlegum hætti á þeirri efnahagslegu stöðu sem upp kom vegna heimsfaraldursins þar sem við höfum búið í haginn og greitt upp skuldir á umliðnum árum. Þessi halli er gríðarlegur, 320 milljarðar, tekjurnar innan við 800 milljarðar. Það bíður okkar þess vegna gríðarlega mikið verkefni að ná að nýju sjálfbærni í fjármálum ríkisins og hins opinbera. En með kraftmikilli viðspyrnu, sem m.a. kemur með þeim fjárlögum sem hér verða greidd atkvæði um, leggjum við grunn að því að fjármál hins opinbera verði sjálfbær að nýju.

Ég vil þakka nefndinni fyrir góð störf. Það var vasklega unnið í fjárlaganefnd, lítill tími hefur verið til skiptanna og stór álitamál undir. (Forseti hringir.) Það er ekki sjálfgefið að störf geti gengið eins greiðlega fyrir sig og gerst hefur.