fjárlög 2021.
Herra forseti. Hæstv. ríkisstjórn og allir hv. þingmenn í þessum sal hafa viðurkennt að bregðast þurfi við tekjufalli fyrirtækja og styðja fyrirtæki til viðspyrnu þegar heimsfaraldurinn hefur gengið yfir. Það sem hæstv. ríkisstjórn og hv. þingmenn stjórnarflokkanna hafa hins vegar ekki viðurkennt að þurfa að taka á er tekjufall heimila og að heimili þeirra sem misst hafa vinnuna og bera þyngstu fjárhagslegu byrðarnar í þessari atvinnukreppu þurfa líka viðspyrnu. Það þarf að bregðast við tekjufalli þeirra mun betur en gert er í þessu fjárlagafrumvarpi. Það er skammarlega lítið lagt til heimilanna í þessari djúpu atvinnukreppu og þess vegna gagnrýni ég hæstv. ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmenn fyrir getuleysi í þeim efnum.