fjárlög 2021.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Hverjum hefði dottið í hug fyrir ári, þegar við greiddum atkvæði um fjárlög, að við stæðum í þessum sporum hér í dag? Og ég ætla að segja þetta orð: Það eru fordæmalausir tímar og þetta eru fordæmalaus fjárlög. Ríkisstjórnin hefur haft kjark til þess að setja af stað gríðarlega mikla innspýtingu fyrir heimilin, fyrir fyrirtækin og fyrir samfélagið allt til að allir geti átt viðspyrnu. Hvað er besta dæmið um að það hafi tekist gagnvart heimilunum í landinu? Jú, útsvar sveitarfélaganna hefur haldið sér nokkuð vel á árinu 2020. Við höfum væntingar um það, þegar bóluefni er að koma, og bjartsýni til að ætla að við munum ná að vinna niður þann halla sem nú er gefinn. Það þarf hugrekki til þess. Það þarf bjartsýni á efnahagslífið og samfélagið og hana höfum við. Ég vil þakka fjárlaganefnd og Alþingi fyrir að hafa gengið svo hratt og vel frá þessu fjárlagafrumvarpi á þeim knappa tíma sem menn hafa fengið.