fjárlög 2021.
Herra forseti. Eins og kom fram hér áðan í málflutningi mínum eru allar breytingartillögur Miðflokksins fullfjármagnaðar, enda mjög mikilvægt í þeim gríðarlega halla sem nú blasir við hjá ríkissjóði. Hér er lögð til eignasala, að nýbygging Landsbankans við Austurhöfn verði seld og andvirðið renni í ríkissjóð í formi arðgreiðslu enda engin þörf fyrir þessa byggingu í eigu ríkisins á dýrustu lóð landsins þegar bankaþjónusta er gjörbreytt og störfum hefur fækkað umtalsvert. Hér er auk þess lögð til hækkun á tryggingagjaldinu. Það er mjög mikilvægt, eins og við þekkjum, að styrkja fyrirtækin á erfiðum tímum svo að ekki komi til uppsagna og viðspyrnan verði sem best.