151. löggjafarþing — 36. fundur, 11. des. 2020.
fjárlög 2021.
1. mál
Hæstv. forseti. Hér er gerð tillaga um 25 millj. kr. tímabundið framlag til samstarfsverkefnis Persónuverndar og sýslumannsins á Norðurlandi eystra um þjónustuver á Húsavík. Gert er ráð fyrir tveimur starfsmönnum, lögfræðingi og skrifstofumanni. Þessu vil ég fagna. Þetta er gott verkefni og veit ég að þar hafa menn verið með opinn huga og góðar tillögur að því hvernig færa má störf út um landið. Þessu vil ég fagna.