151. löggjafarþing — 36. fundur, 11. des. 2020.
fjárlög 2021.
1. mál
Herra forseti. Þetta mál snýr að landbúnaðinum og er í raun og veru svokallað Covid-mál. Það varðar birgðasöfnun í mjólkurpróteini sem er mjög mikil vegna veirufaraldursins og ekki síst vegna innflutnings á ostum frá Evrópusambandinu sem hefur misfarist í tollskráningu þannig að hann er margfalt meiri en hann ætti að vera. Þetta hefur valdið greininni miklum erfiðleikum og hér er lagður til styrkur til að vinna á þessari birgðasöfnun.