fjárlög 2021.
Herra forseti. Þetta er mikið gleðiefni. Það hefur verið mikið baráttumál og mikið réttlætismál að ná jöfnun orkuverðs í landinu. Við vitum að mörg heimili vítt og breitt um landið búa við mjög háan orkukostnað og á næsta ári, 1. september, verður full jöfnun án þess að hækka jöfnunargjaldið á flutningi á raforku um landið. Þetta er mikið fagnaðarefni og ber virkilega að fagna.
Ég vil bara segja það að þetta fjárlagafrumvarp er óvenju gott miðað við þessar erfiðu aðstæður. Það er stórátak á ferðinni til viðspyrnu fyrir heimilin og fólk og fyrirtæki sem sýnir að þessi ríkisstjórn hefur kjark og þor til að takast á við þær erfiðu aðstæður sem þjóðin býr við og við sjáum að við erum að komast í gegnum með góðri ríkisstjórn. (Gripið fram í: Þá er nú gaman að koma með breytingartillöguna sína.)