151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[14:47]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Aukning til handa Landspítalanum er um 4 milljarðar kr. eða 5,2% milli ára. Landspítalinn er flaggskip íslensks heilbrigðiskerfis og hefur ítrekað sýnt hvað í honum býr og ekki síst núna í Covid-19 og baráttunni við faraldurinn. Við erum að byggja meðferðarkjarna við Hringbraut. Við erum að stórefla heilsugæsluna og fjölga hjúkrunarrýmum. Allt skiptir þetta máli fyrir áframhaldandi sókn í heilbrigðismálum. Á tímabilinu 2017–2021 hefur framlag til heilbrigðismála aukist um 43 milljarða á föstu verðlagi eða nær 20% raunhækkun í málaflokkinn á kjörtímabilinu, kjörtímabili sem hefur munað um fyrir heilbrigðismálin í landinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)