151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[14:55]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það ánægjulega gerðist á þessu ári að allir flokkar, stjórn og stjórnarandstaða, sameinuðust um þetta mikilvæga mál, að veita og greiða aðgengi, ekki síst ungs fólks og fólks með lágar tekjur, að sálfræðiþjónustu, óháð því hvort hún er veitt hjá ríkinu eða einkaaðilum. Hér beinum við sjónum að einkaaðilum og það er eins og ríkisstjórnin geti ekki byggt upp heilbrigðisþjónustu öðruvísi en í gegnum ríkisvaldið, í gegnum hið opinbera. Við þurfum að greiða aðgang að þessari þjónustu. Við verðum að hafa það í huga að beinn kostnaður samfélagsins vegna geðræns vanda er 20 milljarðar. Hann er þrefaldur í óbeinum kostnaði, u.þ.b. 100 milljarðar falla á samfélagið á ári vegna áfalla í æsku og núna er þessi faraldur. Þetta er ákall til ykkar, kæru vinir hér inni. Styðjum þetta mál, sýnum fyrirhyggju, sýnum að við berum umhyggju fyrir samborgurum okkar. Ef það huggar einhvern þá er þetta þjóðhagslega hagkvæmt.