fjárlög 2021.
Forseti. Ég fagna þeim góða hug sem birtist í þessari tillögu. Mig langaði að nýta tækifærið til að koma hingað upp og hvetja hæstv. ríkisstjórn og ráðherra málaflokksins og fjármála til dáða í því sem ég tel vera réttmætt fyrirkomulag á sjúkrahúsrekstri á Íslandi, þ.e. að ríkið sjái um sjúkrahúsrekstur. Það er mín bjargfasta trú að sjúkrahúsrekstur sé best kominn í höndum ríkisins. Það á við um þennan rekstur sem og annan. Ég hvet til þess að tryggt sé að þessum málum verði komið í góðan farveg en get því miður ekki stutt þessa tillögu.